Innlent
119 120 121 122 123 124 125 126 127 … 334 ›
Þjófnaðir í matvöruverslunum og óvelkominn gestur Lögreglu bárust þrjár tilkynningar tengdar matvöruverslunum í gærkvöldi og nótt en í tveimur tilvikum var um að ræða þjófnað. Áttu þeir sér stað í hverfum 105 og 220. Innlent 22.7.2024 07:04
„Eina spilið sem þeir áttu eftir á hendi“ Stjórnmálafræðingur segir þá ákvörðun Bidens Bandaríkjaforseta að draga framboð sitt til baka hafa endurstillt baráráttu demókrata og repúblikana um Hvíta húsið í nóvember. Ekki eru fordæmi fyrir því að forsetaefni stigi til hliðar svo seint í baráttunni. Innlent 21.7.2024 20:50
Reiknar með 15 þúsund manns í Herjólfsdal Spenna og eftirvænting fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum vex og vex með hverjum deginum en formaður þjóðhátíðarnefndar reiknar með 15 þúsund manns í dalinn. Bekkjabílar verða á sínum stað og efnt verður til búningakeppni í tilefni af 150 ára afmæli þjóðhátíðar. Innlent 21.7.2024 20:03
„Ég hef ekki aðgang að vatni neins staðar annars staðar“ Eigandi sumarbústaðar í Vestur-Skaftafellssýslu kennir umdeildum garði um laka grunnvatnsstöðu í bústað sínum. Um er að ræða sama garð og hefur valdið því að gjöfult fiskveiðisvæði er upp urið. Innlent 21.7.2024 20:00
Opnun Sorpu frestað vegna ölvaðs manns með háreysti Tafir urðu á opnun grenndarstöðvar Sorpu í Ánanaustum vegna manns sem var með háreysti við inngang stöðvarinnar. Þónokkrir gestir þurftu að bíða í röð vegna afskipta lögreglu af manninum en hann var einnig undir áhrifum. Innlent 21.7.2024 16:20
Glæsilegt biblíusafn í Vestmannaeyjum Eitt merkilegasta biblíusafn landsins er varðveitt vel og vandlega í eldtraustri geymslu í Vestmannaeyjum en mun þó líta dagsins ljós fyrir almenning í haust. Innlent 21.7.2024 16:04
„Alvarlega vanfjármögnuð“ í viðhaldinu Forstjóri Vegagerðarinnar segir stofnunina alvarlega vanfjármagnaða þegar það kemur að viðhaldi vega. Ósamþykkt samgönguáætlun setur sömuleiðis strik í reikninginn. Innlent 21.7.2024 15:07
Næga atvinnu að hafa á Vopnafirði Allir sem að vettlingi geta valdið og vantar vinnu geta fengið vinnu á Vopnafirði enda nóg að gera þar og atvinnulífið blómstrar, sem aldrei fyrr. Innlent 21.7.2024 14:30
Gríðarleg sprunga í Hagafelli vekur athygli Náttúruvársérfræðingur segir ekkert styðja kenningu eldfjallafræðings um goslok við Sundhnúka. Landris og aukin skjálfavirkni mælast áfram og líkur eru á eldgosi á næstu vikum. Veðurstofan er meðvituð um gríðarstóra sprungu í Hagafelli, sem vakið hefur athygli á samfélagsmiðlum. Sprungan er gömul en stækkaði umtalsvert í síðasta gosi. Innlent 21.7.2024 12:31
Vígreifur Trump, umdeild goslokaspá og vopnfirskt atvinnulíf Donald Trump virðist hafa sigur í bandarísku forsetakosningunum í hendi sér, og þyrfti að klúðra málunum sjálfur til þess að verða ekki næsti forseti Bandaríkjanna, að mati stjórnmálafræðings. Trump þakkar guðlegri forsjá að hann var ekki ráðinn af dögum í síðustu viku. Innlent 21.7.2024 11:51
Landtöku Ísraela skuli hætt Utanríkisráðuneytið kallar eftir því í tilkynningu að Ísraelar láti af landtöku í Palestínu. Innlent 21.7.2024 10:46
Vegagerð, veðmálastarfsemi og kosningar vestanhafs Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag. Vegagerð, húsnæðismarkaður, veðmálastarfsemi og forsetakosningar vestanhafs verða í brennidepli. Innlent 21.7.2024 10:16
Skógur á Snæfellsnesi undirlagður salernispappír Sá hvimleiði siður margra ferðamanna, að ganga örna sinna úti í náttúrunni með tilheyrandi sóðaskap, verður aldrei upprættur, að mati leiðsögumanns. Skógur á Snæfellsnesi hefur verið undirlagður salernispappír í sumar. Innlent 21.7.2024 09:29
Land rís enn með aukinni skjálftavirkni Land rís enn á Reykjanesskaga og aukin skjálftavirkni hefur mælst undanfarna viku. Innlent 21.7.2024 09:17
„Í engu ástandi til að sýsla með slík vopn“ Tveir voru handteknir í nótt, grunaðir um eignarspjöll og líkamsárás í íbúð í fjölbýlishúsi. Húsráðandi geymdi skotvopn án réttinda í fataskáp. Innlent 21.7.2024 08:10
Haraldur spyr hvort gosum sé lokið í Sundhnúksgígaröðinni Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir vísbendingu um að kvikustreymi upp í lárétta kvikuinnskotið undir Svartsengi hafi verulega minnkað eða að því sé lokið. Hann spyr: „Goslok í Sundhnúksgígaröðinni?“ í fyrirsögn nýs pistils á eldfjallabloggi sínu. Innlent 20.7.2024 22:04
Allir íbúar rúmast ekki lengur í einu og sama húsinu Íbúum á Hvanneyri fer sífellt fjölgandi, þökk sé brottfluttum Hvanneyringum sem snúa aftur heim og nemendum Landbúnaðarháskólans sem ákveða að setjast að í bænum. Mikil uppbygging er fyrirhuguð og heimamenn eru hreyknir af einum flottasta frisbígolfvelli landsins. Innlent 20.7.2024 20:39
54 milljónum króna ríkari Einn miðahafi var með allar tölur réttar í Lottó-útdrætti kvöldsins og hlýtur rúmar 53,9 milljónir króna í vinning. Annar miðahafi fékk bónusvinninginn og fær rúmar 819 þúsund krónur. Innlent 20.7.2024 19:52
Segir aðkomu Kennarasambandsins ekkert nema eðlilega Viðskiptaráð Íslands kennir stefnumótun Kennarasambandsins um neyðarástand í íslensku grunnskólakerfi, og vill fá samræmd próf aftur inn í skólana. Stjórnarmaður í sambandinu gefur lítið fyrir slíka gagnrýni. Innlent 20.7.2024 19:51
Skipbrot í skólakerfinu og afhjúpun í Hafnarfirði Viðskiptaráð Íslands kennir stefnumótun Kennarasambandsins um neyðarástand í íslensku grunnskólakerfi, og vill fá samræmd próf aftur inn í skólana. Stjórnarmaður í sambandinu gefur lítið fyrir slíka gagnrýni. Við fjöllum um skólamálin í kvöldfréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá klukkan 18:30. Innlent 20.7.2024 18:01
Solaris fordæmir ummæli vararíkissaksóknara Stjórn Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, fordæmir ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara um samtökin sem hann lét falla í færslu á Facebook síðu sinni í gær. Innlent 20.7.2024 17:04
Horfir nýjum augum á frambjóðendur eftir eigið framboð Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að framboð sitt til forseta hafi breytt sýn hans á alla frambjóðendur. Hann telji sig skilja betur það sem þeir gangi í gegnum. Innlent 20.7.2024 15:29
Félag í eigu rabbína keypti Framsóknarhúsið Félag í eigu rabbínsins Avraham „Avi“ Feldham hefur fest kaup á Framsóknarhúsinu á Hverfisgötu. Hann flutti hingað til lands árið 2018 til þess að koma fyrstu íslensku sýnagógunni á laggirnar. Innlent 20.7.2024 14:15
Löng bílaröð á leiðinni úr bænum Unnið er að því að mála vegi á Hellisheiði og mega tilvonandi sumarbústaðar- og tjalddveljendur bíða talsvert á leið þeirra suður á land. Löng bílaröð hefur myndast á Hellisheiðinni. Innlent 20.7.2024 13:29
Hinn tannbrotni er íslenskur Maðurinn sem þrír erlendir ferðamenn gengu í skrokkinn á í miðborg Reykjavíkur í nótt er íslenskur og er að sögn lögreglu tannbrotinn og nokkuð slasaður. Innlent 20.7.2024 13:16
Afstaða borgarstjóra „blaut tuska í andlit margra“ Oddviti Flokks fólksins í borginni kveðst sleginn yfir ummælum borgarstjóra um stöðu fólks sem býr í hjólhýsum í borginni. Fólkið hafi fengið fyrirheit um úrlausn sinna mála, sem nú virðist úr sögunni. Innlent 20.7.2024 13:01
Hakkarar komnir á kreik, hjólabúar í sárum og Lunga í síðasta skipti Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við um eitt mesta tækniáfall síðari ára, sem heldur áfram að valda usla víða um heim. Hakkarar herja nú á þá sem lent hafa í vanda vegna tæknibilunarinnar, og ráðherra er á varðbergi. Innlent 20.7.2024 11:52
Gerir ættar- og meint hagsmunatengsl Odds að umtalsefni Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari gerir ættar- og meint hagsmunatengsl Odds Ástráðssonar lögmanns að umtalsefni í færslu á Facebook, þar sem hann bregst við gagnrýni Odds. Innlent 20.7.2024 11:27
Börnum sé mismunað eftir búsetu við einkunnagjöf Viðskiptaráð Íslands segir að jafnræðis sé ekki gætt við einkunnagjöf í íslenskum grunnskólum. Þetta komi fram á könnunarprófi sem lagt er fyrir nýnema Verzlunarskóla Íslands í upphafi skólaárs til að kanna raunfærni þeirra. Innlent 20.7.2024 09:48
Sakar Maríu um trumpisma Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins svarar fyrir gagnrýni sem hún hefur hlotið vegna ummæla um íslenska femínista í aðsendri grein á Vísi. Þar spyr hún hvort hægrikonur megi ekki ræða ofbeldi „sem berst hingað frá fjarlægari heimshlutum“ og bendlar gagnrýninn femínista við trumpisma. Innlent 20.7.2024 08:52