Innlent
282 283 284 285 286 287 288 289 290 … 334 ›
Mögulegt að smærri viðburður valdi gosi Verðmætabjörgun í Grindavík heldur áfram í dag. Svipað mynstur er á jarðhræringum á svæðinu og fyrir síðasta gos en mögulegt er að minni atburð þurfi en áður til að koma gosi af stað vegna skamms tíma frá síðasta gosi. Innlent 5.2.2024 12:55
Vísbendingar um bakslag í kynjahlutföllum innan lögreglunnar Lögreglan er enn mjög kynjaskiptur vinnustaður og engin merki eru um að það muni breytast án þess að ráðist verði í aðgerðir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum rannsóknar á vinnumenningu lögreglunnar. Jafnframt kemur fram að þrátt fyrir að konum hafi fjölgað innan lögreglunnar á síðustu árum og hlutfall karla og kvenna hafi jafnast, séu nú vísbendingar um bakslag. Innlent 5.2.2024 12:55
Gengið of nærri björgunarsveitum Gengið hefur verið of nærri björgunarsveitum og efla þarf aðra viðbragðsaðila í almannavarnakerfinu, að mati þingmanns Pírata. Sérstök umræða um almannavarnir og áfallaþol Íslands fer fram á Alþingi í dag. Innlent 5.2.2024 11:50
Fólk með mislinga beðið um að taka upp símann Fólk sem telur mögulegt að þau eða börnin þeirra hafi smitast af mislingum eru beðin um að fara ekki á heilsugæslu eða sjúkrahús. Þess í stað eigi þau að hringja í 1700 eða hafa samband við heilbrigðisstarfsmenn í gegnum netið. Innlent 5.2.2024 11:44
Ung börn með verki í brjóstum vegna hormónagels móður Dæmi eru um að ung börn hér á landi hafi fundið fyrir verkjum í brjóstum. Börnin sofa upp í hjá mæðrum sínum á nóttunni en mæðurnar hafa verið í estrógen-meðferð í gelformi. Innlent 5.2.2024 11:43
Hverfa aftur til fyrra skipulags aðgengis að Grindavík Á morgun, þriðjudaginn 6.febrúar, verður aftur farið í fyrra útgefið skipulag þar sem aðgengi að Grindavík verður með þeim hætti að íbúar fá fyrirframskilgreindan dag til að fara til Grindavíkur í lengri tíma en áður. Innlent 5.2.2024 11:41
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar tökum við stöðuna í Grindavík og heyrum í Almannavörnum og Veðurstofunni. Innlent 5.2.2024 11:38
„Skólinn í sjálfu sér kemur ekkert nærri þessu“ Hópur grunnskólanema í Hagaskóla í Reykjavík hefur boðað til verkfalls á morgun til stuðnings Palestínu. Skólastjóri segist ekki gera sér grein fyrir umfangi verkfallsins og hvort fimm, fimmtíu eða fimm hundruð nemendur muni ganga út úr tímum á morgun. Hann fagnar því að ungt fólk sé hugsandi, taki afstöðu og láti sig samfélagsleg málefni varða. Innlent 5.2.2024 11:27
Fjórði áreksturinn í dag Fjórir árekstrar hafa orðið í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi. Þeir hafa flestir verið smávægilegir og aðeins einn hefur verið fluttur á bráðamóttöku. Innlent 5.2.2024 10:39
Lykilsönnunargagn ófundið í lífshættulegri skotárás Héraðssaksóknari hefur ákært Shokri Keryo, karlmann á 21. aldursári, fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal í nóvember síðastliðnum. Miskabótakrafa fimm einstaklinga sem ýmist urðu fyrir skoti eða stóð ógn af skotunum hljóðar upp á samanlagt níu milljónir króna. Skotvopnið er ófundið. Innlent 5.2.2024 09:58
Fundað hjá ríkissáttasemjara í dag Breiðfylking stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og fulltrúar Samtaka atvinnulífsins funda í dag hjá ríkissáttasemjara. Innlent 5.2.2024 09:55
Árekstur á Háaleitisbraut Betur fór en á horfðist þegar árekstur tveggja fólksbíla varð við gatnamót Háaleitisbrautar og Miklubrautar í Reykjavík í morgun. Þegar slökkvilið bar að garði höfðu allir farþegar bílanna komið sér út úr bílunum og enginn þeirra var slasaður. Innlent 5.2.2024 09:11
Þetta voru vinsælustu nöfnin á liðnu ári Birnir var vinsælasta fyrsta eiginnafn drengja á síðasta ári og Emilía var vinsælast á meðal stúlkna. Þór var vinsælasta annað eiginnafn drengja og María á meðal stúlkna. Innlent 5.2.2024 08:29
Ökumaður snjóruðningstækis fluttur á bráðamóttöku Umferðarslys varð á Reykjanesbraut nálægt Smáralind í Kópavogi snemma í morgun, þegar fólksbíll og snjóruðningstæki skullu saman. Ökumaður snjóruðningstækisins var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar. Innlent 5.2.2024 08:24
1.200 til Grindavíkur í gær og um þúsund í dag Yfir 1.200 manns fóru til Grindavíkur í gær, að stærstum hluta íbúar en einnig viðbragðsaðilar. Þess er vænst að fjöldinn verði í kringum þúsund í dag. Innlent 5.2.2024 07:13
„Ef ég ætti að giska held ég að tölvurnar hafi verið notaðar“ „Við vorum engir sérfræðingar á rafmynt á þessum tíma. Við lærðum mjög mikið á mjög skömmum tíma,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, sem á sínum tíma rannsakaði Bitcoin-málið svokallaða og sótti það fyrir dómstólum. Innlent 5.2.2024 07:00
Sigurður Hjartarson er látinn Sigurður Hjartarson, fyrrverandi menntaskólakennari og stofnandi Hins íslenzka reðasafns, er látinn 82 ára að aldri. Lilja Svanbjörg Sigurðardóttir rithöfundur og dóttir Sigurðar greinir frá andláti hans á Facebook. Innlent 5.2.2024 02:44
Nálgast sömu stöðu og fyrir gos Sama magn kviku, eða um 6,5 milljón rúmmetrar, hefur flætt inn í kvikuholfið undir Svartsengi frá goslokum og talið er að hafi flætt inn í kvikuinnskotið í aðdraganda eldgoss 14. janúar síðastliðinn. Innlent 4.2.2024 21:11
Óbólusett börn meðal útsettra Sóttvarnarlæknir hefur áhyggjur af mögulegri útbreiðslu mislinga hérlendis eftir að erlendur ferðamaður greindist með sjúkdóminn á landspítalanum í gær. Maðurinn fékk útbrot á fimmtudag og leitaði sér heilbrigðisþjónustu á föstudag. Innlent 4.2.2024 20:43
Úlfur, úlfur slær í gegn hjá 10. bekk á Akranesi Nemendur í 10. bekk Grundaskóla á Akranesi hafa lítið þurft að kíkja í skólabækurnar sínar síðustu vikur því öll einbeiting þeirra og kraftur hefur farið í að æfa söngleikinn “Úlfur, úlfur”, sem þau sýna nú fyrir fullu húsi kvöld eftir kvöld. Innlent 4.2.2024 20:31
Eins og hundrað kílóum léttari eftir að hafa tæmt húsið Fjöldi Grindvíkinga tæmdi hús sín í dag, þegar íbúar fengu rýmri aðgang að bænum en áður. Einhverjir vonast til að geta snúið aftur á meðan aðrir kvöddu bæinn fyrir fullt og allt í dag. Innlent 4.2.2024 19:57
Skoða þurfi ástæðu fjölgunar banaslysa strax Innviðaráðherra segir að skoða verði ástæðu fjölda banaslysa í umferðinni í byrjun árs sem fyrst. Hann segir stöðuna algjörlega óviðunandi. Innlent 4.2.2024 19:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjöldi Grindvíkinga tæmdi hús sín í dag, þegar íbúar fengu rýmri aðgang að bænum en áður. Einhverjir vonast til að geta snúið aftur á meðan aðrir kvöddu bæinn fyrir fullt og allt í dag. Við heyrum hljóðið í Grindvíkingum í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 4.2.2024 18:18
Ekki merki um stórfelldan gagnastuld Það eru ekki merki um stórfelldan gagnastuld þegar tölvuárás var gerð á Háskólann í Reykjavík á föstudaginn. Þó sé ekki hægt að útiloka gagnastuld að hluta. Innlent 4.2.2024 17:15
Sammála um áframhaldandi stuðning við UNRWA Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar, Orri Páll Jóhannsson þingmaður Vinstri grænna og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknar eru sammála um það að íslenska ríkið eigi ekki að fresta áframhaldandi greiðslum til UNRWA, Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu. Innlent 4.2.2024 16:03
Bílvelta á gatnamótum Holtavegs og Sæbrautar Umferðarslys varð seinnipartinn í dag á gatnamótum Holtavegs og Sæbrautar. Mikill viðbúnaður var á vettvangi en engan þurfti að flytja á slysadeild. Innlent 4.2.2024 15:30
Hafa áhyggjur af mögulegum mislingafaraldri Sóttvarnarlæknir segir yfirvöld hafa áhyggjur af útbreiðslu mislinga hérlendis eftir að erlendur ferðamaður á Landspítalanum greindist með sjúkdóminn í gær. Hún segir minnkandi þátttöku í bólusetningum þýða að ekki sé hjarðónæmi gegn sjúkdómnum Innlent 4.2.2024 14:02
Lilja Dögg ráðherra er ánægð með að Bláa lónið sé opið Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir er mjög sátt við að Bláa lónið sé opið þrátt fyrir jarðhræringar á Reykjanesi. Hún segir fyrirtækið afar mikilvægt þegar ferðaþjónustan er annars vegar en þar starfa tæplega níu hundruð manns. Innlent 4.2.2024 13:30
Nánast allir íbúar Gasa reiða sig á okkur Gréta Gunnarsdóttir, yfirmaður UNRWA í New York, segir starfsemi stofnunarinnar falla um sjálfa sig í lok mánaðarins ef þau ríki sem ætla sér að fresta framlögum til stofnunarinnar láta verða af því. Tvær milljónir manna á Gasa reiða sig á stofnunina en auk þess starfar hún á Vesturbakkanum í Palestínu og í Jórdaníu og Sýrlandi. Innlent 4.2.2024 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Reiknað er með að um þúsund manns vitji eigna sinna í Grindavík í dag, á fyrsta degi nýs fyrirkomulags við verðmætabjörgun. Íbúi sem vinnur að því að tæma húsið sitt segist ekki treysta sér til þess að búa lengur í Grindavík og kveður samfélagið með miklum trega. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Innlent 4.2.2024 11:55