Innlent
39 40 41 42 43 44 45 46 47 … 334 ›
Reglan að forseti fari fram á starfsstjórn Biðji forsætisráðherra lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt er reglan að forseti biður ríkisstjórnarflokkanna að sitja áfram í starfsstjórn þar til nýr ríkisstjórn hefur verið mynduð segir lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík. Ef annar tekur við hins vegar við forsætisráðuneytinu þá sé um að ræða nýja ríkisstjórn en ekki starfsstjórn. Það séu til dæmi um það. Innlent 15.10.2024 12:18
Vísað úr landi með föður sem hafi afsalað sér forsjá Sextán ára dreng frá Kólumbíu verður vísað úr landi ásamt föður sínum klukkan 13 í dag. Faðir drengsins afsalaði sér forsjá drengsins til barnaverndar Hafnarfjarðar fyrr í þessum mánuði. Faðir drengsins hefur auk þess verið kærður til lögreglu fyrir ofbeldi gegn drengnum. Innlent 15.10.2024 12:14
Stefnir á að sækjast eftir embætti rektors Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, gerir ráð fyrir að sækjast eftir embætti rektors Háskóla Íslands. Rektor er skipaður til fimm ára í senn en Jón Atli Benediktsson, núverandi rektor, var fyrst kjörinn í embættið árið 2015 og tók við starfi 1. júlí sama ár. Hann var endurskipaður rektor árið 2020 og hefur því bráðum gegnt embættinu í tíu ár. Jón Atli hyggst ekki sækjast áfram eftir embættinu þegar skipunartíma hans lýkur næsta sumar. Innlent 15.10.2024 11:56
Mótmælendur unnu spellvirki á utanríkisráðuneytinu Málningu var slett á inngang og stétt fyrir utan utanríkisráðuneytið við Austurbakka á mótmælum Félagsins Íslands-Palestínu í morgun. Einn mótmælandi var handtekinn fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Innlent 15.10.2024 11:56
Lífeyrisþeginn hefði átt að láta reyna á skerðinguna fyrr Hæstiréttur hefur sýknað Tryggingastofnun ríkisins af kröfum lífeyrisþega og Öryrkjabandalags Íslands um afturvirka leiðréttingu á bótum, sem höfðu verið ólöglega skertar. Hæstiréttur taldi lífeyrisþegann og bandalagið hafa búið yfir nægum upplýsingum um kröfur sínar til að láta á þær reyna fyrir dómstólum fyrr. Innlent 15.10.2024 11:53
Forseti Alþingis telur eðlilegt að Bjarni leiði starfsstjórn Forseti Alþingis telur eðlilegt að Bjarna Benediktssyni verði falið að leiða starfsstjórn eftir að hann biðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á Bessastöðum síðar í dag. Óvissa ríki eðlilega um þingstörf þessa dagana en ekkert verði að þingfundi sem var á dagskrá Alþingis í dag. Innlent 15.10.2024 11:50
Óvissa um þingstörfin og enn stefnir í kennaraverkfall Í hádegifréttum verður rætt við Birgi Ármannsson forseta Alþingis sem hitti Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að Staðastað í morgun. Innlent 15.10.2024 11:43
Segjast ekki hafa fengið formlega kröfugerð frá kennurum Samninganefndir í kennaradeilunni komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara í morgun. Þetta var fyrsti fundur síðan boðað var til verkfalla sem eiga að bresta á í lok mánaðar. Formaður samninganefndar hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga segir kennara ekki hafa formlega lagt fram kröfugerð og formaður Kennarasambandsins segir yfirvofandi verkföll skerpa fókusinn hjá öllum. Innlent 15.10.2024 11:36
Skítamix til að gera það besta úr vonlausri stöðu Til stendur að skipta starfsemi Stuðla upp og flytja hluta hennar frá Grafarvogi, þar sem hún hefur verið, upp í Mosfellsbæ. Í nýtt húsnæði sem starfsmenn segja ekki henta. Þar hefur fundist mygla og húsnæðið er ekki hannað fyrir starfsemi að þessu tagi. Funi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Barna- og fjölskyldustofu segir þetta skítamix - verið sé að reyna að gera það besta úr vonlausri stöðu. Innlent 15.10.2024 11:33
Martha Lilja verður framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu Martha Lilja Olsen hefur verið skipuð framkvæmdastjóri Janfréttisstofu. Það er Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra sem skipar Mörthu í embættið en alls sóttu sex um embættið. Innlent 15.10.2024 11:11
Páll skipstjóri hvergi nærri hættur Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls Steingrímssonar fyrrverandi skipstjóra hjá Samherja, er að leggja lokahönd á kæru á niðurfellingu rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra á meintri byrlun til ríkissaksóknara. Innlent 15.10.2024 10:49
Skordýr í pastaskrúfum Krónan hefur hafið innköllun og tekið úr sölu pastaskrúfu sem seldar eru undir vörumerkinu First Price eftir að skordýr fannst í innihaldi einnar pakkningar frá framleiðandanum. Ekki kemur fram í tilkynningu hvaða skordýr það var. Innlent 15.10.2024 10:32
„Við erum í ákveðnu óvissutímabili“ Það ríkir óvissuástand um framhald þingstarfa í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi í íslenskum stjórnmálum. Þetta sagði Birgir Ármannsson forseti Alþingis að loknum fundi sínum með Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í morgun. Það muni ráðast síðar í dag hvernig þingstörfum verður háttað í vikunni. Þess má vænta að forsætisráðherra muni síðar í dag biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Innlent 15.10.2024 10:17
„Ég er viss um að hann mundi allt sem gerðist þetta kvöld“ „Maður missti svo mikið við þessa atlögu. Ég missti pabba, ég missti frænda minn, ég missti griðastaðinn minn þarna. Í rauninni held ég að það hafi ekki komið mér á óvart þegar hann neitaði sök. Þetta er ekki maður sem hefur gengist við gjörðum sínum,“ segir Ellen Drífa Ragnarsdóttir, dóttir Ragnars Lýðssonar sem ráðinn var bani á bænum Gýgjarhóli árið 2018. Banamaður Ragnars var bróðir hans, Valur Lýðsson. Innlent 15.10.2024 10:06
Rúmar þrjár milljónir króna á hvert gæludýr úkraínskra flóttamanna Ráðstafanir til þess að úkraínskir flóttamenn gætu tekið gæludýr sín með sér til Íslands kostuðu hátt í 59 milljónir króna. Kostnaðurinn á hvert gæludýr nam rúmum þremur milljónum króna en koma þurfti á fót sérstakri einangrunarstöð fyrir dýrin. Innlent 15.10.2024 09:41
Píratar komnir í kosningaham Píratar eru komnir í kosningaham og hafa nokkrir þeirra þegar gefið út að þeir muni sækjast eftir sæti á lista. Þeirra á meðal eru þingmennirnir Björn Leví Gunnarsson og Gísli Rafn Ólafsson og Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir sem nýlega gekk til liðs við flokkinn. Öll hafa þau birt færslur á samfélagsmiðlum þar sem þau kalla eftir stuðningi. Innlent 15.10.2024 09:36
Ekkert bendi til þess að innrauðar sánur séu betri en venjulegar Prófessor emeritus í lífeðlisfræði segir ekkert benda til þess að innrauðar sánur, sem njóta síaukinna vinsælda hér á landi, virki betur en hefðbundin gufuböð eða heitir pottar. Upplýsingaóreiða virðist ríkja hjá mörgum sem bjóða upp á innrauðar sánur. Innlent 15.10.2024 09:06
Birgir mættur á fund forseta Íslands Birgir Ármannsson forseti Alþingis gekk á fund Höllu Tómasdóttur forseta Íslands nú klukkan níu í morgun til að ræða við hana stöðu mála. Í framhaldinu má búast við að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra gangi á fund forseta Íslands og biðjist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Innlent 15.10.2024 09:04
Þórdís gæti boðið sig fram í Kraganum Mögulegt er að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, bjóði sig fram í Suðvesturkjördæmi í kosningum sem fara fram í næsta mánuði. Hún segist íhuga það alvarlega. Innlent 15.10.2024 08:40
Enginn þingfundur í dag og óvissa um framhaldið Þingfundur verður ekki á Alþingi í dag eins og gert hafði verið ráð fyrir og segir Birgir Ármannsson forseti Alþingis að það sé eðlilegt miðað við þær aðstæður sem nú eru uppi. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur nú ákveðið að biðjast lausnar fyrir sig og sitt ráðuneyti. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis hefði þingfundur átt að fara fram í dag. Innlent 15.10.2024 08:02
Varar við „hægriglundroða” Bjarna og Sigmundar og landsfundi frestað Formaður Samfylkingarinnar varar við mögulegum „hægriglundroða með flokksbrotum Bjarna og Sigmundar og fylgitunglum þeirra,“ að afstöðnum alþingiskosningum sem framundan eru. Þá hefur framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar ákveðið að fresta landsfundi flokksins sem átti að fara fram um miðjan nóvember. Er það mat framkvæmdastjórnarinnar að það sé best fyrir flokkinn og að öllum kröftum flokksins verði beint í kosningabaráttu. Þess í stað verði stefnt að landsfundi í mars eða apríl. Innlent 15.10.2024 07:31
„Það má berja barn á Íslandi ef það er ekki með íslenska kennitölu“ Lögregla sótti dreng frá Kólumbíu, Oscar Andres Florez Bocanegra, inn á salerni Flensborgar í gær og til stendur að flytja hann og föður hans úr landi í dag. Innlent 15.10.2024 06:31
Brutu leið inn á heimili fyrir sjúkralið að veita aðhlynningu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tvívegis kölluð til í gærkvöldi og nótt til að aðstoða sjúkralið, annars vegar vegna slyss sem varð inni á heimili og hins vegar til að brjóta leið inn á heimili þannig að sjúkralið gæti veitt aðhlynningu. Innlent 15.10.2024 06:13
Mikið undir á fyrsta sáttafundi eftir verkfallsboðun Í fyrramálið er mikilvægur fundur hjá Ríkissáttasemjara en umfangsmikil verkföll eru á dagskrá í lok mánaðar. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að enn beri mikið í milli en hann vonast til þess að deiluaðilar nái saman svo afstýra megi verkföllum. Innlent 15.10.2024 00:01
Arndís Anna hyggst ekki bjóða sig fram aftur Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, hyggst ekki bjóða sig fram í komandi Alþingiskosningum. Hún segist þó ekki vera hætt að vinna með Pírötum. Innlent 14.10.2024 23:08
Meintur nethrellir fær bætur vegna húsleitar Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manni sem grunaður var um að ofsækja konu miskabætur vegna húsleitar, handtöku og haldlagningu tækjabúnaðar í fleiri ár. Þær bætur sem hann fékk voru þó umtalsvert lægri en þær sem hann krafðist. Innlent 14.10.2024 22:55
„Loksins!“ segja ungir sjálfstæðismenn Samband ungra sjálfstæðismanna fagnar ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um að binda enda á ríkisstjórnarsamstarfið. Innlent 14.10.2024 22:03
Starfsstjórn með nýjum forsætisráðherra „bara einhver furðukenning“ Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segist ætla að biðjast lausnar úr embætti, en segir það hafa legið fyrir frá því að hann tilkynnti um að hann óski eftir þingrofi á sunnudag. Honum finnist eðlilegast að mynda starfsstjórn með stuttan forgangslista sem geti komið mikilvægum málum, líkt og fjárlögum, í gegn sem fyrst. Innlent 14.10.2024 21:06
Ekki einhugur meðal formanna flokkanna um framhaldið Ekki er einhugur um það meðal leiðtoga á Alþingi hvort forseti Íslands eigi að verða við ósk forsætisráðherra um þingrof, eða hvort honum beri að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Forsetinn ræddi við leiðtoga allra flokkanna í dag. Formaður Vinstri grænna lýsti því yfir snemma í kvöld að hún gæti vel séð fyrir sér minnihlutastjórn hennar flokks með Sigurð Inga Jóhannsson formann Framsóknarflokksins í embætti forsætisráðherra fram að kosningum. Innlent 14.10.2024 20:13
Þykir leitt hvernig kennarar túlkuðu orð sín Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir sér þykja það leitt að ummæli sem hann lét falla á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna fyrir helgi hafi verið túlkuð á þann veg að hann beri ekki virðingu fyrir störfum kennara. Innlent 14.10.2024 19:52