Viðskipti innlent
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 334 ›
Seðlabankinn lækkar vextina um 50 punkta Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 8,5 prósent í 8,0 prósent. Viðskipti innlent 5.2.2025 08:30
Anna nýr sjóðstjóri hjá SIV eignastýringu Anna Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem sjóðstjóri til SIV eignastýringar og kemur hún inn í kredit teymi félagsins. Viðskipti innlent 4.2.2025 14:04
Tugmilljarða hagsmunir í húfi Samtök Iðnaðarins segja Evrópumarkað vera mikilvægasta markað Íslands en útflutningur fyrir tugi milljarða á ári sé einnig til Bandaríkjanna og fari vaxandi. Það sé því mikilvægt að Ísland gæti hagsmuna sinna bæði gagnvart ESB og Bandaríkjunum, enda miklir hagsmunir í húfi fyrir íslenskan útflutning og þar með hagkerfið og samfélagið allt. Viðskipti innlent 4.2.2025 13:05
Eyrir skuldlaus og með 62 milljarða hlut í JBT Marel Í kjölfar samruna Marel hf. og John Bean Technologies Corporation er Eyrir Invest hf. einn stærsti hluthafi í JBT Marel Corporation með 6,6 prósenta eignarhlut, sem er um 62 milljarða króna virði. Eyrir Invest hefur gert upp allar skuldbindingar við lánveitendur og er nú skuldlaus. Viðskipti innlent 4.2.2025 11:36
Kjarninn farinn úr Heimildinni Arnar Þór Ingólfsson blaðamaður hefur söðlað um, hann er hættur á Heimildinni og er hann nú orðinn starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar. Viðskipti innlent 4.2.2025 10:55
Frá Sjálfstæðisflokknum til Viðskiptaráðs Lísbet Sigurðardóttir hefur verið ráðin í stöðu lögfræðings á málefnasviði Viðskiptaráðs. Hún kemur til ráðsins frá þingflokki Sjálfstæðisflokkins þar sem hún hefur starfað frá árinu 2021. Viðskipti innlent 4.2.2025 09:57
Gísli Rafn til Rauða krossins Rauði krossinn á Íslandi hefur ráðið Gísla Rafn Ólafsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins og hefur hann störf í þessari viku. Gísli Rafn var þingmaður fyrir Pírata en náði ekki inn á þing, eins og aðrir þingmenn Pírata, í síðustu alþingiskosningum. Hann sat fyrir hönd Pírata í utanríkismála- og þróunarsamvinnunefnd á meðan hann sat á þingi frá 2021 til 2024. Viðskipti innlent 4.2.2025 09:05
Eiga von á um 10 þúsund gestum Reiknað er með að um 10 þúsund gestir muni sækja UTmessuna sem verður haldin í fimmtánda sinn næstkomandi föstudag og laugardag. Viðskipti innlent 4.2.2025 09:04
Fara í steininn ef þeir punga ekki út tveimur milljörðum innan mánaðar Sverrir Þór Gunnarsson og Snorri Guðmundsson, sem voru í dag sakfelldir fyrir stórfelld tollalagabrot, þurfa hvor um sig að greiða 1,1 milljarð króna í sekt til ríkissjóðs. Ef þessi sekt verður ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins skulu þeir sæta fangelsi í 360 daga. Viðskipti innlent 3.2.2025 20:39
Jarðefnaeldsneytisbílar um fimmtungur nýskráðra fólksbíla Rúmur fimmtungur nýskráðra fólksbíla í janúar var bensín- eða dísilknúinn. Tæplega sex hundruð bílar voru nýskráðir og fjölgaði þeim um hátt í þriðjung á milli ára. Viðskipti innlent 3.2.2025 15:44
Ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka Þrír nýir starfsmenn hafa gengið til liðs við fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, Guðríður Svana Bjarnadóttir og Ólafur Örn Ólafsson í stöður verkefnastjóra og Helena Wessman í starf sérfræðings. Viðskipti innlent 3.2.2025 12:52
Rafrettukóngur og Drekaeigandi sektaðir um 1,1 milljarð hvor Snorri Guðmundsson rafrettukóngur og Sverrir Þór Gunnarsson eigandi söluturnsins Drekans hafa verið dæmdir í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi og til að greiða ríkissjóði hvor um sig 1,1 milljarð króna í sekt fyrir stórfelld tollalagabrot. Viðskipti innlent 3.2.2025 12:38
22 sagt upp í einu hópuppsögn janúarmánaðar Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í janúar. 22 starfsmönnum var þar sagt upp á sviði heilbrigðisþjónustu. Viðskipti innlent 3.2.2025 09:59
Heimsfræg bangsaverksmiðja opnuð í Smáralind Hagkaup opnuðu í gær Build-A-Bear-bangsaverksmiðju í verslun sinni í Smáralind. Fjöldi fólks lagði leið sína í bangsaverksmiðjuna og myndaðist löng röð fyrir opnunina. Viðskipti innlent 2.2.2025 15:02
40 prósent ódýrara að leigja af óhagnaðardrifnum félögum Allt að fjörutíu prósent ódýrara er að leigja íbúðarhúsnæði af óhagnaðardrifnum leigufélögum en á almennum leigumarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir fjölgun íbúða hafa biðlistar eftir óhagnaðardrifnu leiguhúnsæði lengst um fjórðung á milli ára. Viðskipti innlent 1.2.2025 19:01
Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Forstjóri Haga segir stöðvun framkvæmda við Álfabakka 2 að hluta hafa áhrif á áform félagsins um flutning hluta starfsemi þess í húsnæðið. Hagar geri ráð fyrir því að eigendur hússins vinni að úrlausn málsins og lausn finnist sem allir geti fellt sig við. Viðskipti innlent 31.1.2025 16:09
Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin sem rekstrarstjóri og yfirframleiðandi hjá framleiðslufyrirtækinu ACT4 . ACT4 var stofnað í lok árs 2022 og sér um að þróa og fjármagna framleiðslu á íslensku sjónvarps- og kvikmyndaefni fyrir alþjóðamarkað. Viðskipti innlent 31.1.2025 14:11
Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Áætlað er að þjóðhagslegur sparnaður af rafrænum skuldabréfum og lánaumsýslu gæti numið nokkrum milljörðum króna. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hvetja stjórnvöld til að breyta lögum svo ávinningur rafrænna þinglýsinga nái betur fram að ganga. Viðskipti innlent 31.1.2025 14:06
Kolefnisförgunarstöð geti skapað Ölfusi störf og tekjur Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti viljayfirlýsingu við Carbfix um undirbúning kolefnisförgunarstöðvar í gær. Verkefnið er sagt geta skapað fjölbreytt atvinnutækifæri og skilað sveitarfélaginu auknar tekjur. Sérstaka áherslu á að leggja á samráð við samfélagið um verkefnið. Viðskipti innlent 31.1.2025 14:05
Vænta 50 punkta lækkunar en telja 25 punkta líklega Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að stýrivextir verði lækkað um hálft prósentustig næst þegar peningastefnunefnd kemur saman þann 5. febrúar. Deildin telur þó að aðeins 25 punkta lækkun sé möguleg. Viðskipti innlent 31.1.2025 13:54
Birgir hættir hjá Skaga Birgir Arnarson, framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Skaga, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. Viðskipti innlent 31.1.2025 13:48
Valdimar Sveinsson hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands Valdimar Sveinsson hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands árið 2025 fyrir verkefnið Lífupplýsingafræðileg greining á kælisvari frumna. Valdimar er nemi í læknisfræði við Háskóla Íslands. Leiðbeinendur verkefnisins voru Kimberley Anderson Rannsóknarstofustjóri og Hans Tómas Björnsson Prófessor við læknadeild Háskóla Íslands. Verðlaunin í ár er LAVA Vasi, handblásinn úr endurunnu gleri frá Fólk Reykjavik. Viðskipti innlent 30.1.2025 18:18
37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Landsbankinn hagnaðist um 37,5 milljarða króna, eftir skatta, á síðasta ári. Það er aukning um rúma fjóra milljarða frá árinu 2023 þegar hagnaðurinn var 33,2 milljarðar króna. Til stendur að greiða nítján milljarða króna í arð vegna ársins, eða um helming af hagnaði. Viðskipti innlent 30.1.2025 18:01
Heildarfjöldi farþega 4,7 milljónir í fyrra Heildartekjur Icelandair á 4. ársfjórðungi jukust um 10 prósent og námu 48 milljörðum króna eða 349 milljónum Bandaríkjadala. EBIT afkoma batnaði um 2,5 milljarða króna (18 milljónir USD), EBIT á fjórða ársfjórðungi var neikvætt um 4,4 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair um ársreikning þeirra fyrir árið 2024. Þar kemur ennfremur fram að tap félagsins á síðasta ári hafi verið 2,5 milljarðar króna. Viðskipti innlent 30.1.2025 17:54
Spá 50 punkta lækkun stýrivaxta Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýruvexti um 50 punkta þannig að þeir fari úr 8,5 prósent í 8,0 prósent. Viðskipti innlent 30.1.2025 13:57
Átján tilnefningar til UT-verðlauna Skýs Átján vinnustaðir og verkefni eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský, sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, mun afhenda á UTmessunni í Hörpu föstudaginn 7. febrúar. UT-verðlaunin eru veitt fyrir mikilvægt framlag til upplýsingatækni á Íslandi, en þau eru nú veitt í sextánda sinn. Viðskipti innlent 30.1.2025 12:41
Bein útsending: Fjármálaþjónusta framtíðarinnar Ráðstefnan Fjármálaþjónusta framtíðarinnar fer fram í Hörpu milli klukkan 13 og 16 í dag. Viðskipti innlent 30.1.2025 12:32
Rannveig kjörin heiðursfélagi Félag viðskipta- og hagfræðinga hefur kosið Rannveigu Sigurðardóttir, fyrrverandi varaseðlabankastjóra peningastefnu, heiðursfélaga FVH. Viðskipti innlent 30.1.2025 11:19
Icelandair hefur flug til Miami Icelandair tilkynnti í dag um nýjan áfangastað flugfélagsins. Það er Miami í Flórída ríki Bandaríkjanna. Fram kemur í tilkynningu að flogið verði til borgarinnar þrisvar í viku. Viðskipti innlent 30.1.2025 11:15
Verðbólga mjakast niður á við Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,27 stig á milli mánaða í janúar. Ársverðbólga mældist 4,6 prósent sem var 0,2 stigum minna en í desember. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um sextán prósent frá því í desember en áfengi og tóbak hækkuðu um tæp fjögur prósent. Viðskipti innlent 30.1.2025 09:25