Viðskipti innlent
195 196 197 198 199 200 201 202 203 … 334 ›
Vanskil aldrei verið minni þrátt fyrir efnahagsáfall Vanskil einstaklinga og fyrirtækja hafa aldrei verið minni en á árinu 2020 samkvæmt tölum úr vanskilaskrá Creditinfo. Telur fyrirtækið líklegt að greiðslufrestir frá lánastofnunum og fyrirtækjum sem veittir voru vegna áhrifa heimsfaraldurs COVID-19 eigi stóran þátt í þessari þróun. Viðskipti innlent 21.1.2021 18:32
ASÍ fussar og sveiar yfir uppsögnum Bláfugls Alþýðusamband Íslands fordæmir það sem sambandið kallar enn eina tilraunina til félagslegra undirboða í flugrekstri hér á landi. Vísað er til uppsagnar fragtflugfélagsins Bláfugls sem sagði upp ellefu flugmönnum í desember í hagræðingarskyni. Viðskipti innlent 21.1.2021 16:29
Fá AGS til að greina hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka yfir landamæri Norður- og Eystrasaltslöndin átta hafa leitað til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til að fá sjóðinn til að greina hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka yfir landamæri á svæðinu. Viðskipti innlent 21.1.2021 14:24
Kampi á Ísafirði í greiðslustöðvun og starfsmanni sagt upp Rækjuvinnslan Kampi á Ísafirði fékk í morgun greiðslustöðvun hjá Héraðsdómi Vestfjarða til að komast til botns í fjárhagsvanda fyrirtækisins. Fjármálastjóra fyrirtækisins var sagt upp störfum í desember. Stjórnarformaður Kampa segir stjórnina hafa fengið áfall þegar slæm fjárhagsstaða blasti við í lok árs. Viðskipti innlent 21.1.2021 12:52
Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar mælir með sölu á allt að 35 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis telur rétt að hefja sölu á allt að þrjátíu og fimm prósentum af eign ríkisins í Íslandsbanka. Setti verði takmörk á hvað hver og einn geti eignast stóran hlut í bankanum. Viðskipti innlent 21.1.2021 11:29
Meistaradeildin áfram á Stöð 2 Sport í samstarfi við Viaplay Stöð 2 Sport hefur tryggt sér sýningarrétt að stærstu félagsliðakeppnum Evrópu í knattspyrnu og mun sýna frá Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildinni og nýrri keppni, UEFA Europe Conference League, frá 2021 til 2024. Viðskipti innlent 21.1.2021 08:13
Gáfust upp á biðinni eftir ferðamönnum Veitingastaðnum Eldsmiðjunni á Bragagötu í Reykjavík hefur verið lokað fyrir fullt og allt. Lauk þar með sögu eins elsta pítsustaðar landsins. Á síðasta ári fækkaði stöðum Eldsmiðjunnar úr fjórum í einn. Viðskipti innlent 20.1.2021 21:10
Klárir að taka loðnunótina um borð og halda til veiða Skipstjórinn sem fann þykkar loðnutorfur á Austfjarðamiðum um helgina segir áhöfnina tilbúna að hefja veiðar. Búist er við að það skýrist á morgun hvort Hafrannsóknastofnun gefi grænt ljós á loðnuvertíð. Viðskipti innlent 20.1.2021 21:02
ESA tekur fyrsta skrefið í samningsbrotamáli gegn Íslandi Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tók í dag fyrsta skrefið í meðferð samningsbrotamáls gegn Íslandi þegar formleg áminning var send stjórnvöldum með athugasemdum við lagaumhverfi leigubifreiðaksturs hér á landi. Viðskipti innlent 20.1.2021 17:39
Íslenskir forritarar höfðu betur í baráttu við Ballarin um vangoldin laun USAerospace Associates LLC, félag í eigu Michelle Ballarin sem hefur stefnt að flugrekstri undir merkjum WOW air, hefur verið dæmt til að greiða tveimur forriturum rúmlega fjörutíu milljón krónur í vangoldin laun. Dómur var kveðinn upp í héraði í dag. Viðskipti innlent 20.1.2021 16:13
Kaupfélag Skagfirðinga í hamborgarana Kaupfélag Skagfirðinga er orðinn eigandi M-veitinga ehf. sem rekur hamborgarastaðina Metro í Skeifunni og Smáratorgi. Þetta er ljóst með niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins sem hafði kaupin til skoðunar. Viðskipti innlent 20.1.2021 14:40
Ari, Ísól, Sunneva Sól og Þórdís Rögn hlutu Nýsköpunarverðlaun forsetans Ari Kvaran, Sunneva Sól Ívarsdóttir og Þórdís Rögn Jónsdóttir, nemar í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands og Ísól Sigurðardóttur, nemi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík hlutu í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands árið 2021. Verðlaunin fengu þau fyrir verkefnið Betri samskipti við sjúklinga sem bíða innlagnar og meðferðar á sjúkrahúsinu Vogi. Viðskipti innlent 20.1.2021 13:47
Helga Dís og Pétur Karl til Samkaupa Helga Dís Jakobsdóttir og Pétur Karl Ingólfsson hafa verið ráðin til Samkaupa. Viðskipti innlent 20.1.2021 11:49
Fá 335 milljóna styrk frá ESB til nýsköpunar Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Laki Power, sem þróar og framleiðir tæki til þess að fylgjast með ástandi háspennulína, hefur hlotið 2,1 milljóna evra styrk, jafnvirði um 335 milljóna króna, frá Evrópusambandinu til að þróa tæknina áfram og efla sölu- og markaðsstarf á erlendum mörkuðum. Viðskipti innlent 20.1.2021 11:06
Langþráðar rafrænar þinglýsingar verði að veruleika á þessu ári Rafrænar þinglýsingar verða að veruleika á þessu ári, að sögn Andra Heiðars Kristinssonar, stafræns leiðtoga fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Þetta kom fram í máli hans á fundi sem Samtök fjármálafyrirtækja stóðu meðal annars fyrir í dag en Andri leiðir verkefnið Stafrænt Ísland. Viðskipti innlent 19.1.2021 21:17
Breytingar á skrifstofu Akraneskaupstaðar Nýtt stjórnskipulag Akraneskaupstaðar var samþykkt á 1324. fundi bæjarstjórnar þann 15. desember og tók gildi þann 1. janúar. Markmið breytinganna er að auka og bæta innri og ytri þjónustu Akraneskaupstaðar, auka skilvirkni í rekstri sveitarfélagsins með upplýsingatækni, skýrari verkferlum, stjórnun og öflugu starfsumhverfi. Viðskipti innlent 19.1.2021 14:08
Segir mikilvægt að kanna einnig hvort loðna sé fyrir Norðurlandi Loðnuleitin á Austfjarðamiðum hefur haldið áfram í dag. Uppsjávarveiðiskipin þrjú, Ásgrímur Halldórsson, Polar Amaroq og Bjarni Ólafsson, með starfsmenn Hafrannsóknastofnunar um borð í tveimur fyrrnefndu, hafa verið að skanna hafsvæðið norður með landgrunnskantinum út af Austfjörðum. Viðskipti innlent 19.1.2021 13:52
Viðar til Össurar Viðar Erlingsson hefur verið ráðinn til að stýra upplýsingatæknisviði og alþjóðlegri verkefnastofu Össurar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 19.1.2021 13:35
Vilja breyta hosteli við Hlemm í íbúðir Eigendur hússins við Laugaveg 105 hafa sent inn fyrirspurn til skipulagsyfirvalda í Reykjavík þess efnis að fá að gera allt að 36 íbúðir á 3., 4. og 5. hæð hússins. Viðskipti innlent 19.1.2021 07:53
Stefnir í sex milljarða afkomu Arion banka Drög að uppgjöri Arion banka fyrir fjórða ársfjórðung 2020 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim er afkoma fjórðungsins um 6 milljarðar króna og reiknuð arðsemi á ársgrundvelli ríflega 12 prósent. Afkoman er umtalsvert umfram fyrirliggjandi spár greiningaraðila og hærri en á undangengum ársfjórðungum. Viðskipti innlent 18.1.2021 15:47
Skipstjórinn segir töluvert af loðnu út af Austfjörðum Albert Sveinsson, skipstjóri Víkings AK-100, uppsjávarveiðiskips Brims, kveðst ekki í vafa um að mikið sé núna af loðnu á Austfjarðamiðum. Eftir að togarar urðu varir við loðnu þar á laugardag var Albert fenginn til að fara yfir svæðið á Víkingi. Viðskipti innlent 18.1.2021 15:06
Sigríður Þrúður ráðin mannauðsstjóri Kópavogsbæjar Sigríður Þrúður Stefánsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Kópavogsbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Þar segir að Sigríður Þrúður hafi víðtæka stjórnunar- og sérfræðireynslu. Viðskipti innlent 18.1.2021 14:52
Bein útsending: Salan á Íslandsbanka í brennidepli á Alþingi Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða á dagskrá við upphaf þingfundar klukkan 15 í dag. Þá verða til svara forsætisráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra, félags- og barnamálaráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra og dómsmálaráðherra. Viðskipti innlent 18.1.2021 14:39
Zuism-bræðurnir hafa opnað pítsustað Einar Ágústsson og Ágúst Arnar Ágústsson, sem hvað þekktastir eru sem forsvarsmenn trúfélagsins Zuism, hafa opnað nýjan pítsustað í Garðabæ. Staðurinn heitir Slæs, með vísun til enska orðsins fyrir sneið, og er hann til húsa í Iðnbúð 2 í Garðabæ. Viðskipti innlent 18.1.2021 14:23
Þrjú skip til loðnumælinga eftir að torfur sáust á Austfjarðamiðum Þrjú loðnuskip hafa verið send til loðnumælinga út af miðjum Austfjörðum eftir að fréttist af loðnutorfum á stóru svæði um helgina. Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar eru um borð til að kanna hvort þarna séu nýjar loðnugöngur á ferð. Viðskipti innlent 18.1.2021 12:21
BÍ telur lokaða dagskrá Stöðvar 2 „lægsta punkt í samtímasögu íslenskrar fjölmiðlunar“ „Það verða straumhvörf í íslenskri fjölmiðlasögu þegar fréttir Stöðvar 2 hætta að vera í opinni dagskrá núna í janúar eftir 34 ára nánast samfellda starfsemi. Það eru tímamót þegar fréttir Stöðvar 2, til að mynda af náttúruhamförunum á Seyðisfirði fyrir fáum vikum síðan, verða fyrir áskrifendur eingöngu en ekki fyrir allan almenning þessa lands.“ Viðskipti innlent 15.1.2021 17:45
Fólki sem hefur verið án atvinnu í meira en ár fjölgað um 156 prósent Heildaratvinnleysi mældist 12,1% hér á landi í desember sem er óveruleg aukning frá nóvermber. Þar af var almennt atvinnuleysi 10,7% í desember og atvinnuleysi tengt minnkuðu starfshlutfalli 1,4%. Vinnumálastofnun spáir því að almennt atvinnuleysi aukist í janúar og verði á bilinu 11,3% til 11,7%. Viðskipti innlent 15.1.2021 15:01
Stjórnvöld greiddu Icelandair 350 milljónir króna vegna flugferða Íslensk stjórnvöld greiddu Icelandair tæpar 350 milljónir króna á síðasta ári til að tryggja lágmarksflug til og frá landinu. Fyrsti samningur þess efnis tók gildi í lok mars á síðasta ári og fól í sér að ríkið myndi greiða upp tap flugfélagsins sem hlaust af því að halda flugi gangandi til og frá Evrópu og Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 15.1.2021 13:21
Gengi krónunnar lækkaði um 10,4 prósent Gengi krónunnar lækkaði um 10,4% á árinu 2020 og heildarvelta á millibankamarkaði með gjaldeyri jókst um 124% frá fyrra ári. Heimsfaraldur Covid-19 hafði mikil áhrif á innlendan gjaldeyrismarkað og átti Seðlabankinn umfangsmikil gjaldeyrisviðskipti til að draga úr sveiflum og bæta verðmyndun á markaðnum. Viðskipti innlent 15.1.2021 09:24
Vonbrigði móður mikilvæg lexía Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir er 21 árs ung kona frá Akureyri sem útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2019. Hún hefur frá útskrift unnið þrjú störf og segist hafa lagt gríðarlega mikla áherslu á sparnað. Hún hafi þegar náð að safna sér dágóðri upphæð en hún hyggur á nám og vill eiga sparnað þegar þar að kemur. Viðskipti innlent 15.1.2021 07:01