
Viðskipti innlent

Gætu sætt sektum ef skráningu raunverulegra eigenda er ekki lokið fyrir mánaðamót
Viðunandi skráning raunverulegra eigenda er ein af forsendum þess að Ísland komist af gráum lista.

Efnahagsóveðurskýin hrannast upp yfir Íslandi
Ingólfur Bender telur menn hafa brugðist of seint við versnandi efnahagshorfum.

Hópuppsagnir í janúar náðu til 95 manns
Þrjár tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í janúar þar sem 95 starfsmönnum var sagt upp störfum.

Óska eftir að Jötunn vélar verði tekið til gjaldþrotaskipta
Forsvarsmenn Jötunn véla, hafa lagt fram beiðni um að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Félagið hefur á undanförnum árum verið umsvifamikið þjónustufyrirtækið í landbúnaði hér á landi.

Bein útsending: Peningastefnunefnd rökstyður stýrivaxtaákvörðun
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skýrir frá ákvörðun sinni um að lækka stýrivöxti bankans í 2,75% á fundi sem hefst klukkan 10 í Seðlabankanum.

Stýrivextir lækka í 2,75 prósent
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur.

Bein útsending: Menntadagur atvinnulífsins 2020
Á Menntadegi atvinnulífsins 2020 verður fjallað um sköpun í íslensku atvinnulífi og menntakerfi út frá fjölmörgum sjónarhornum.

Óvíst hvort namibísku skipverjunum verði sagt upp
Fjöldi namibískra skipverja er í óvissu með stöðu sína eftir að Samherji ákvað fara með Skipin Geysi og Sögu frá Namibíu.

Kristján tekur við af Ingva hjá H:N Markaðssamskiptum
Kristján Hjálmarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar H:N Markaðssamskipta.

Hætta við byggingu gagnavers á Hólmsheiði
Borgarráð hefur ákveðið að afturkalla lóðarvilyrði til félagsins eftir að Síminn tilkynnti borginni að fallið hafi verið frá fyrirhuguðum áætlunum.

Endurvekja Facebook-síðu WOW Air
Þetta er auðvitað ákveðið lífsmark með undirbúningsferlinu sem hefur staðið yfir í marga mánuði en hefur tekið lengri tíma en við áttum von á. WOW world er ákveðið hugtak sem við höfum verið að nota og þetta er vísbending um að fólk sé að hugsa stórt segir Gunnar Steinn Pálsson, almannatengill og talsmaður WOW Air.

Iceland innkallar vegan pizzur
Iceland hefur innkallað „No Cheese Houmous Style Pizza 284g“ og „No Cheese Mediterranean Pizza 382g“.

Loðnan langt undir mörkum
Stærð hrygningarstofns loðnu samkvæmt mælingum í janúar var um 64 þúsund tonn. Er það langt undir þeim mörkum í gildandi aflareglu sem þarf að ná svo Hafrannsóknastofnun geti ráðlagt veiðar.

Pósturinn getur ekki sent til Kína vegna Wuhan-veirunnar
Ekki er hægt að senda sendingar með Póstinum til Kína. Ástæðan er sú að þau flugfélög sem þjónusta Póstinn eru hætt að fljúga til landsins vegna Wuhan-veirunnar.

Bjóða út breikkun hringvegar milli Selfoss og Hveragerðis
Þegar framkvæmdum lýkur haustið 2023 verður kominn 2+1 vegur með aðskildum akstursstefnum milli þessara tveggja fjölmennustu bæja Suðurlands.

Agla Eir nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs
Agla Eir Vilhjálmsdóttir hefur tekið við starfi lögfræðings Viðskiptaráðs Íslands.

Sala nýrra fólksbíla heldur áfram að dragast saman
Sala á nýjum fólksbílum hefur farið hægt af stað það sem af er ári en í janúar seldust 709 nýir fólksbílar hér á landi.

Orðinn stafrænn leiðtogi í ráðuneyti Bjarna
Andri Heiðar Kristinsson hefur verið ráðinn stafrænn leiðtogi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Búist við töfum á póstsendingum frá Kína
Mörg flugfélög hafa aflýst ferðum til Kína sökum Wuhan-veirunnar sem nú herjar.

Samið við verktaka um byggingu baðlóns á Kársnesi
Nature Resort ehf og ÍAV hf. undirrituðu í dag verksamning sem felur í sér að ÍAV verður aðalverktaki við uppbyggingu á baðlóni fyrir Nature Resort ehf við Vesturvör á Kársnesi í Kópavogi.

Sýknudómur í máli Björgólfs og Gunnars staðfestur í París
Áfrýjunardómstóll í París í Frakklandi hefur staðfest niðurstöðu undirréttar þar í landi og sýknað Björgólf Guðmundsson, fyrrverandi aðaleiganda Landsbankans, og Gunnari Thoroddsen, fyrrverandi yfirmanns bankans í Lúxemborg, af ákæru um að hafa blekkt hundruð manna til að taka veðlán hjá Landsbankanum.

Landsréttur hafnaði kröfum Eimskips
Landsréttur hefur hafnað kröfum Eimskips í máli sem fyrirtækið hefur rekið í tengslum við rannsókn Samkeppniseftirlitsins á ætluðu ólögmætu samráði fyrirtækisins við Samskip. Úrskurðurinn var kveðinn upp í gær.

Snorri Pétur til Keahótela
Snorri Pétur Eggertsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs og tekjustýringar hjá Keahótelum.

Andri Már boðar nýja nálgun á íslenskan ferðamarkað
Aventura Holidays, ný ferðaskrifstofa á vegum Andra Más Ingólfssonar, fyrrum eiganda Primera Travel, mun hefja sölu á ferðum í næsta mánuði.

MDE tekur markaðsmisnotkunarmál Landsbankans fyrir
Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) mun taka markaðsmisnotkunarmál lykilstarfsmanna Landsbankans fyrir hrun til efnismeðferðar. Dómurinn úrskurðaði um þetta fyrr í mánuðinum en greint er frá málinu á forsíðu Fréttablaðsins í dag.

Icelandair grípur til varúðarráðstafana vegna Wuhan-veirunnar
Icelandair er í reglulegum samskiptum við sóttvarnarlækni vegna Wuhan-kórónaveirunnar og hefur félagið gripið til varúðunarráðstafana vegna hennar. Flugfélagið hefur til að mynda sett viðbótarbúnað á borð við andlitsgrímur, hanska og sótthreinsiefni um borð í vélar sínar.

Heimavellir seldu íbúðirnar á Skaga á 346 milljónum undir markaðsverði
Verkalýðsleiðtoginn Vilhjálmur Birgisson hellir sér yfir Heimavelli og Íbúðalánasjóð.

Leiguverðið var ekki lengur í Paradís
„Það sem er að gerast er einfaldlega það að við erum að missa húsnæðið,“ segir Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíós Paradísar.

Skella í lás hjá Bíó Paradís eftir þrjá mánuði
Bíó Paradís við Hverfisgötu í Reykjavík verður lokað frá og með 1. maí næstkomandi og öllu starfsfólki bíósins hefur verið sagt upp störfum.

Sonur Jóns Geralds blæs nýju lífi í Kost
Tómas Gerald Sullenberger, kaupsýslumaður og sonur Jóns Geralds Sullenberger, hefur endurreist verslunina Kost, sem faðir hans stofnaði og rak um árabil.