Viðskipti innlent
35 36 37 38 39 40 41 42 43 … 334 ›
Guðríður Eldey nýr framkvæmdastjóri Samáls Guðríður Eldey Arnardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samáls, Samtaka álframleiðanda á Íslandi. Guðríður mun taka við starfinu af Pétri Blöndal, en hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra frá árinu 2013. Viðskipti innlent 4.2.2024 11:34
Hægt að forrita og prófa kappakstursbíla á UT-messunni í dag Um fimmtán þúsund manns hafa síðustu ár gert sé dagamun á Tæknidegi UT-messunnar. Framkvæmdastjóri á von á því sama í Hörpu dag. UT-messan er bæði ráðstefna og sýning fyrir fagfólk í upplýsingatækni. Viðskipti innlent 3.2.2024 14:01
Suðurnesjabær býður Höllu velkomna til Sandgerðis Halla María Svansdóttir, veitingakona í Grindavík sem rekið hefur veitingastaðinn hjá Höllu í heimabæ sínum hefur samið við Suðurnesjabæ um aðstöðu í Vörðunni í Sandgerði. Viðskipti innlent 2.2.2024 16:29
Hópuppsögn í Grindavík: „Erfiðasta ákvörðun sem við höfum tekið í lífinu“ „Þetta er erfiðasta ákvörðun sem við höfum tekið í lífinu, að gera þetta. Það var bara ekki annað hægt,“ segir Hermann Th. Ólafsson, framkvæmdastjóri Stakkavíkur ehf. í samtali við fréttastofu vegna hópuppsagnar sem fór fram hjá fyrirtækinu um nýliðin mánaðamót. Viðskipti innlent 2.2.2024 14:58
Hætta viðskiptum með seðla í öllum erlendum myntum nema fjórum Frá og með 15. mars 2024 mun Arion banki aðeins taka við og selja erlenda seðla í fjórum myntum; breskum pundum, bandaríkjadollar, pólskum zloty og evrum. Viðskipti innlent 2.2.2024 14:37
Fyrstu vísbendingar benda til gagnagíslatöku Fyrstu vísbendingar um tölvuárásina sem gerð var á Háskólanum í Reykjavík um klukkan 1:30 í nótt benda til þess að um sé að ræða gagnagíslatöku Viðskipti innlent 2.2.2024 12:31
47 sagt upp í hópuppsögn Fjörutíu og sjö starfsmönnum fyrirtækis í matvælaframleiðslu var sagt upp í nýliðnum janúarmánuði. Viðskipti innlent 2.2.2024 11:19
Tölvuárás gerð á HR Tölvuárás var gerð á Háskólann í Reykjavík í nótt. Persónuvernd og CERT-IS hafa verið upplýst. Viðskipti innlent 2.2.2024 10:12
Falið að stýra lánasviði Fossa Guðmundur Björnsson hefur verið ráðinn forstöðumaður lánasviðs Fossa fjárfestingarbanka. Viðskipti innlent 2.2.2024 09:42
„Það er mikilvægur áfangi að skila hagnaði“ Icelandair hagnaðist um 1,5 milljarð í fyrra, eftir skatta, sem er töluverð breyting frá árinu áður þegar félagið tapaði 800 milljónum. Eldgos og jarðhræringar höfðu mikil áhrif á rekstur félagsins á fjórða ársfjórðungi. Alls ferðuðust þó 4,3 milljónir farþega með þeim í fyrra sem er aukning um 17 prósent frá árinu á undan. Viðskipti innlent 1.2.2024 21:23
Jónína ráðin til Blikk Nýsköpunar- og fjártæknifyrirtækið Blikk hefur ráðið Jónínu Gunnarsdóttir, fyrrverandi forstjóra Teya, í starf rekstrarstjóra. Viðskipti innlent 1.2.2024 14:55
Hagnaður Landsbankans 33 milljarðar á síðasta ári Hagnaður Landsbankans á árinu 2023 nam 33,2 milljörðum króna eftir skatta og var arðsemi eiginfjár 11,6 prósent. Bankaráð hyggst leggja til við aðalfund bankans að bankinn greiði 16,5 milljarða króna í arð á árinu 2024. Viðskipti innlent 1.2.2024 12:32
Ráðinn öryggisstjóri Síldarvinnslunnar Páll Freysteinsson hefur verið ráðinn nýr öryggisstjóri Síldarvinnslunnar og hóf hann störf fyrr í dag. Viðskipti innlent 1.2.2024 12:21
Stórtækir íbúðaeigendur sanka að sér íbúðum Íbúðum í eigu lögaðila og einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð fjölgaði um tvö þúsund á síðasta ári og fjölgunin hefur ekki verið jafnmikil frá árinu 2010. Viðskipti innlent 1.2.2024 11:08
Tekur við sem forstjóri CRI Lotte Rosenberg hefur verið ráðin í stöðu forstjóra íslenska hátæknifyrirtækisins Carbon Recycling International (CRI) og Björk Kristjánsdóttir, sem sinnt hefur starfi tímabundins forstjóra frá 2022, hefur tekið við nýrri stöðu framkvæmdastjóra rekstrar- og fjármálasviðs hjá félaginu. Viðskipti innlent 1.2.2024 08:35
Opna spa í gamalli garðyrkjustöð á Flúðum Samkomulag um uppbyggingu á vegum Greenhouse Spa á Flúðum var undirritað á milli fyrirtækisins og Hrunamannahrepps í liðinni viku. Svæði fyrir ferðaþjónustutengda starfsemi hafði áður verið auglýst laust til úthlutunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarstjóra Flúða, Aldísi Hafsteinsdóttur. Viðskipti innlent 31.1.2024 18:03
Eina athugasemdin vegna of mikillar sótthreinsunar Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur birt skýrslu sína eftir úttekt á framleiðslu Alvotech. Eina athugasemdin var vegna þess að eftirlitsmaður sá starfsmann Alvotech sótthreinsa hanska sína of oft og nota þá ekki með hárréttum hætti. Viðskipti innlent 31.1.2024 15:19
Heimkaup hömstruðu ekki pokana heldur keyptu Einhverjum neytendum brá þegar þeir fengu ávexti og grænmeti frá Heimkaupum afhent í bréfpokum, sem ætlaðir eru lífrænum úrgangi. Sumir töldu jafnvel að fyrirtækið hefði staðið í hamstri á pokunum, sem leiddi til þess að þeir voru fjarlægðir úr verslunum. Heimkaup kaupa pokana hins vegar dýrum dómi í nafni umhverfisverndar. Viðskipti innlent 31.1.2024 13:25
Stjórnendum fækkar hjá Lyfjastofnun Ráðist hefur verið í skipulagsbreytingar hjá Lyfjastofnun í tengslum við aðhaldsaðgerðir og hafa sviðum stofnunarinnar verið fækkað. Samhliða breytingunum hefur stjórnendum verið fækkað en ekki þurfti að grípa til uppsagna. Viðskipti innlent 31.1.2024 13:20
Fimmtán sagt upp hjá Alvotech Líftæknifyrirtækið Alvotech sagði upp fimmtán starfsmönnum í gær. Viðskipti innlent 31.1.2024 12:37
Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári Spáð er 1,9 prósent hagvexti á árinu 2024 í þjóðhagsspá Íslandsbanka. Markar þetta hagsveifluskil og er tiltölulega hægur vöxtur í sögulegu tilliti. Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári. Viðskipti innlent 31.1.2024 09:14
Segir ekki tengsl milli bónusa Skattsins og hverju starfsmenn skila í kassann Ríkisskattstjóri segist skilja áhyggjur þeirra sem telja að viðbótarlaun til starfsmanna Skattsins kunni að grafa undan hlutleysi þeirra og gera það að verkum að þeir sæki mál harðar en ella. Hann bendir á að á sama tíma og 260 milljónir króna hafi verið greiddar í slík laun hafi heildarlaunakostnaður skattsins verið um 25 milljarðar. Viðskipti innlent 30.1.2024 23:43
Verktakar sjá fram á metár í útboðum Met verður slegið í útboðum verklegra framkvæmda í ár, miðað við þau áform sem kynnt voru á Útboðsþingi í dag. Aðgerðir vegna Grindavíkur gætu þó sett strik í reikninginn en Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að frestun stórframkvæmda gæti orðið ein af mótvægisaðgerðunum. Viðskipti innlent 30.1.2024 20:20
Steinunn Hlíf samdi um starfslok Steinunn Hlíf Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri upplifunar viðskiptavina hjá Arion banka, hefur komist að samkomulagi við bankann um starfslok eftir að hafa gegnt starfinu og átt sæti í framkvæmdastjórn bankans frá árinu 2021. Viðskipti innlent 30.1.2024 15:35
Kristján hættir sem framkvæmdastjóri Hér&Nú Kristján Hjálmarsson hefur ákveðið að hætta sem framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Hér og Nú. Hann hyggst einbeita sér að almannatengslum og mun meðal annars áfram vinna náið með viðskiptavinum stofunnar. Viðskipti innlent 30.1.2024 13:13
Minnsta verðbólga í tæp tvö ár Verðbólga hefur ekki verið minni frá því í mars fyrir tveimur árum og mælist nú 6,7 prósentustig. Þetta hljóta að teljast góð tíðindi inn í kjaraviðræður þar sem samningsaðilar stefna allir að gerð samninga sem leiði til minni verðbólgu og lækkun vaxta. Viðskipti innlent 30.1.2024 13:01
Miklar framkvæmdir boðaðar á árinu Opinberir verkkaupar boða ríflega tvöföldun í útboðum verklegra framkvæmda. Umfangsmestu útboðin boða Landsvirkjun, Vegagerðin og Nýr Landspítali. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greiningu Samtaka iðnaðarins vegna Útboðsþings 2024 sem fram fer í dag. Viðskipti innlent 30.1.2024 13:01
Verkís leiðir milljarðaverkefni Íslenska verkfræðistofan Verkís leiðir verkefnið GAMMA, sem styrkt er af Evrópusambandinu og er ætlað að gera vísindamönnum kleift að þróa tæknilausir og breyta ítölsku flutningsskipi til að nýta rafeldsneyti í stað jarðefnaeldsneytis. Viðskipti innlent 30.1.2024 11:32
Tengifarþegar geta nú sjálfir bókað ferð með stuttri viðdvöl á Íslandi Flugfélagið Play býður nú tengifarþegum sínum að bóka sjálfir dvöl á Íslandi án aukakostnaðar þegar þeir fljúga á milli Norður Ameríku og Evrópu. Með nýju viðmóti á vef flugfélagsins geta farþegarnir sjálfir klárað slíka bókun og þar með dvalið á Íslandi í allt að tíu daga áður en þeir halda för sinni áfram yfir Atlantshafið. Viðskipti innlent 30.1.2024 10:41
Bónusar hjá Skattinum „skelfilegt fordæmi“ Skafti Harðarson, formaður Samtaka skattgreiðenda, segir bónuskerfi Skattsins siðlaust og spillt. Starfsfólk Skattsins væri opinberir eftirlitsaðilar og ætti að gæta að hlutleysi. Því væri stefnt í hættu með bónusunum. Skatturinn greiddi 260 milljónir í bónusa á síðustu fjórum árum. Viðskipti innlent 30.1.2024 09:56