330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Dagný Blöndal, sérfræðingur í ársreikningum hjá Creditinfo, hefur fylgst með íslensku atvinnulífi í gegnum ársreikninga fyrirtækja í nær þrjá áratugi. Hún hefur unnið með hundruð þúsunda ársreikninga, upplifað miklar tæknibreytingar og lært að þekkja fyrirtækin af fjárhagsupplýsingum þeirra. Þrátt fyrir annasama daga og krefjandi álagstímabil er áhuginn á starfinu enn sá sami og í upphafi. Framúrskarandi fyrirtæki 26.10.2026 10:51
Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Kaldárbakkabúið er í fyrsta sinn á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki sem verður kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu miðvikudaginn 28. október. Með listanum er vakin athygli á fyrirtækjum sem skara fram úr í rekstri og uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um fjárhagslegan styrk og stöðugleika. Framúrskarandi fyrirtæki 23.10.2026 12:38
Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Góður rekstrarárangur einn og sér dugar ekki til að teljast framúrskarandi. Creditinfo hefur hert skilyrði vottunarinnar Framúrskarandi fyrirtæki og gerir nú kröfu um að fyrirtæki sem falla undir lög um kynjahlutföll í stjórnum uppfylli þau. Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, og Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, fagna ákvörðuninni. Bæði leggja jafnframt áherslu á að fjölbreytni í stjórnum snúist um fleira en kyn. Framúrskarandi fyrirtæki 21.10.2026 09:47
Þungur róður hjá fyrirtækjum en undirstöðurnar sterkar Háir vextir, þrálát verðbólga og minnkandi eftirspurn reyna á íslensk fyrirtæki. Rekstrarumhverfið hefur reynst erfiðara en vonir stóðu til og boðaðar skattahækkanir bæta við áskoranirnar. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, segir undirstöður hagkerfisins þó sterkar og vaxtatækifæri til staðar, meðal annars í fiskeldi og gagnaverum. Framúrskarandi fyrirtæki 15.10.2026 08:37
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Það virðist vera góður kraftur í atvinnulífinu á Vestfjörðum um þessar mundir. Á síðasta ári voru tíu vestfirsk fyrirtæki á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki en samkvæmt stöðunni nú eru þau þegar orðin 14. Þar af eru átta fyrirtæki ný á listanum í ár. Framúrskarandi fyrirtæki 12.10.2026 10:28
„Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Á hverju hausti hefst ákveðinn lokasprettur hjá Creditinfo. Ársreikningar streyma inn, símtölum og tölvupóstum fjölgar og hundruð fyrirtækja eru tekin til nákvæmrar skoðunar. Markmiðið er að finna þau fyrirtæki sem standast ströng skilyrði Creditinfo og geta með réttu talist til Framúrskarandi fyrirtækja. Framúrskarandi fyrirtæki 8.10.2026 11:13