Menning

Rómantísku borgirnar í Evrópu

Þegar Andrea Gylfadóttir söngkona er beðin að nefna uppáhaldsborgina sína á hún erfitt með að gera upp á milli borganna í Norður-Evrópu. "Ég hef farið til ýmissa borga í Bandaríkjunum og þó þær séu spennandi og öðruvísi þá heilla evrópskar borgir mig meira," segir hún.

"Mér finnst alltaf ljúft að fara til Kaupmannahafnar eða Amsterdam og svo eru margar fallegar borgir í Þýskalandi. Í fyrrasumar var í ég til dæmis í Heidelberg og fannst gaman að koma þangað og staðurinn fallegur. Sagan heillar og einhver hlýleiki í fólki og bygingum í sameiningu, hlýlegur andi.

Ég er hrifin af því að láta mér líða vel og finna fyrir sögunni í kringum mig. Ég hef mjög gaman að því að skoða flottar kirkjur og sögulegar minjar og söfn. " Andreu finnst að margar evrópskar borgir eigi einhverjar taugar í sér, jafnvel eins og hún kannist við sig þó hún sé að koma á staðinn í fyrsta sinn," en af hverju það er veit ég ekki.".






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.