Menning

Ný vefsíða um Grikkland

Margir hafa hug á að heimsækja hið fornfræga Grikkland, ekki hvað síst í ár þegar Ólympuleikarnir eru haldnir í upprunalandi sínu. Nýlega var opnuð heimasíðan grikkland.is. Þar má finna upplýsingar um hótel í Aþenu og á Santorini og einnig ýmsa tengla sem koma Grikklandsförum til góða, t.d. ýmsa áhugaverða tengla yfir á síður með fréttum af menningarlífinu sem blómstrar í Aþenu allan ársins hring. Sérstök ástæða er til að benda á grísku listahátíðina eða Hellenic Festival þar sem margir helstu listamenn heims koma fram, en hátíðin stendur fram í september. Að sjálfsögðu er tengill fyrir þá sem hafa áhuga á Ólympíuleikunum. Á vefsíðunni eru einnig tenglar á ýmis flugfélög sem fljúga til Grikklands og skipafélög sem sigla frá Santorini og Krít.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.