Menning

Hátíðir helgarinnar

Færeyskir dagar verða haldnir í Ólafsvík um helgina. Allir ættu að finna eitthvað til skemmtunar við sitt hæfi því margt er í boði. Örvar Kristjánsson spilar á harmonikku og fer með gamanmál, magadansmærin Helga Braga sýnir magadans, Maggi mjói úr Latabæ kíkir í heimsókn og Árni Johnsen flytur sín allra vinsælustu lög. Á markaði sem verður opinn í húsnæði Húsgeyms á Norðurtanga verða um fjörutíu aðilar með margs konar vörur á boðstólum. Sjá nánar á snb.is

Djasshátíð verður haldin á Egilsstöðum í sautjánda skipti. Meðal þeirra sem fram koma þar eru djasssöngkonan Ragnheiður Gröndal ásamt hljómsveit Jóns Páls Bjarnasonar gítarleikara, Blues & Brass sem er átta manna blúsband og Havana-band Tómasar R. Einarssonar. Hátíð sem enginn má missa af.

Jónsmessuhátíð verður haldin á Hofsósi um helgina þar sem margt verður til skemmtunar. Í Vesturfarasetrinu verður handverkssýning Fléttunnar, farið verður í kvennareið að hætti Svaða kvenna, í Höfðaborg verður grillveisla, útimarkaður og fleira þar sem mun ríkja sannkölluð útihátíðarstemning. Hátíðinni lýkur síðan með stórdansleik í Höfðaborg þar sem hljómsveitin Upplyfting mun spila.

Hvalahátíð verður haldin á Húsavík um helgina þar sem hvalurinn verður í sviðsljósinu. Fyrirlestrar verða haldnir um hvali, hvalaskurð og hvalarannsóknir og flaggskip Greenpeace kemur í heimsókn. Á laugardeginum verður fyrirlestur og myndband um líf Keikós, sandkastalakeppni og síðast en ekki síst býðst fólki að fara í Grímseyjarferð með Norðursiglingu. Þetta og margt fleira á hvalahátíð á Húsavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.