Menning

Úkraínskt sælgæti

Úkraínumenn hafa nú fundið upp á nýju sælgæti sem hefur fengið viðurnefnið úkraínskt Snickers en heitir í raun súkkulaði salo. Árum saman hafa Úkraínumenn gætt sér á salo, sem er svínafita. Er hún borin fram með rúgbrauði, hráum hvítlauk og vodka. Súkkulaði salo er hins vegar svínafita í nýjum búningi - hjúpuð í súkkulaði. Nú er hægt að kaupa fjögur stykki af þessu ógirnilega "sælgæti" á 130 krónur á einum fínasta veitingastað í Kíev. Læknar í Úkraínu eru ekki ánægðir með þetta uppátæki og segja að slík samsetning sykurs og salts sé afar slæm og heilbrigðisviðvörun ætti að fylgja hverju stykki.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.