Nýkomið salat á markað 24. júní 2004 00:01
Góðir tímar eru fram undan hjá þeim sem unna fersku salati því úrval af íslenskri framleiðslu er komið í verslanir. Þar á meðal er ný tegund sem nefnist Íslandssalat og ræktað er í Hveratúni í Laugarási. Íslandssalatið er aðeins rauðleitt og hrokkið enda af Lollo Rosso ættinni en sú tegund er þekkt frá fyrri árum og fæst nú líka í búðunum. Hið vinsæla klettasalat, oft nefnt erlenda nafninu Rucola, er líka komið í búðir. "Þetta eru inniræktuð salöt, sem seld eru í pottum og haldast nokkuð vel fersk," segir Aðalsteinn Guðmundsson hjá Sölufélagi garðyrkjumanna. Hann nefnir líka salatþrennu sem er önnur nýjung og samanstendur af Lollo bionda, Lollo rosso og eikarlaufi í sama potti. "Þrennan hefur fengið feiknagóðar viðtökur," segir Aðalsteinn og getur þess að erfitt sé að annast eftirspurn. Íslandssalat að grískum hætti 1 knippi Íslandssalat 1 gúrka 2-3 tómatar, vel þroskaðir 4 msk. ólífuolía 1 msk. sítrónusafi 1 hvítlauksgeiri, pressaður 1/2 tsk óreganó, þurrkað nýmalaður pipar salt 1/2 krukka fetaostur í kryddolíu 10-12 ólífur Salatið rifið niður og sett í skál. Gúrkan skorin í 4-5 cm bita og hver biti síðan í lengjur. Tómatarnir skornir í báta og þeim og gúrkunum blandað saman við salatið. Olía, sítrónusafi, hvítlaukur, óreganó, pipar og salt hrist saman, hellt yfir salatið og blandað vel. Fetaostinum dreift yfir og síðan ólífunum. Salatþrenna með balsamediki og möndlum 1 knippi salatþrenna 200 g kokkteiltómatar 25 g möndlur 3 msk. ólífuolía 2 msk. balsamedik nýmalaður pipar salt nokkur pítubrauð (einnig má nota sneiðar af góðu brauði) Salatið rifið gróft niður og sett í skál eða á fat. Tómatarnir skornir í helminga og blandað saman við. Möndlurnar brytjaðar gróft og ristaðar á þurri pönnu þar til þær eru rétt að byrja að taka lit. Olía, edik, pipar og salt hrist saman, hellt yfir salatið og blandað og að lokum er möndlunum dreift yfir. Pítubrauðin hituð í gegn á þurri pönnu eða í ofni, rifin niður og raðað í kring eða borin fram með á öðrum diski. Klettasalat með rækjum 200 g rækjur 1 knippi klettasalat 1 rauð paprika 3 msk. olía 1 msk. hlynsíróp 1 tsk. dijon-sinnep 1/4 tsk. herbes de provence eða óreganó nýmalaður pipar salt 2-3 msk. söxuð steinselja Rækjurnar látnar þiðna alveg. Klettasalatinu dreift á fat eða stóran disk. Paprikan fræhreinsuð og skorin í mjóar ræmur og þeim dreift yfir. Olía, hlynsíróp, sinnep, kryddjurtir, pipar og salt hrært vel saman í skál. Steinseljunni hrært saman við og síðan rækjunum. Rækjunum hrúgað á miðjuna á salatdiskinum og afganginum af sinnepskryddleginum dreypt yfir salatið. Enn betra er að nota hráar, skelflettar rækjur sem eru þá steiktar í örlítilli olíu á pönnu við góðan hita í 1-2 mínútur eða þar til þær breyta lit, og síðan settar út í kryddlöginn.
Matur Mest lesið Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Lífið Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Lífið „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lífið Oddvitaáskorunin: Hefði viljað verja meiri tíma í tónlistina Lífið Innipúkar geti farið á „tryllt djamm“ í Austurbæjarbíói í annað sinn Lífið „Agaleysið er algjört“ Lífið Gráhærð og aldrei glæsilegri Lífið Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Menning Þessi sigruðu Met Gala Tíska og hönnun Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Lífið Fleiri fréttir Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Krefja Apple um íslensku Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Íbúar furða sig á horfnu listaverki Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Sjá meira