Skipt um olíu 12. júlí 2004 00:01
Það er alltaf góð tilfinning að vera búinn að skipta um olíu á bílnum sínum. Festa olíutappann, vera viss um að olíusían sé rétt hert og nýja olían komin á vélina. Draga síðan olíukvarðann upp til að skoða hreinu olíuna, en þá byrjar ballið, það er komin of mikil olía á vélina. Í flestum tilfellum er ástæðan sú að það er engin olía komin inn í síuna. Meðalolíusía tekur um hálfan lítra af olíu. Það er því nóg að setja vélina í gang í smá stund og mæla svo aftur olíuna á vélinni. Ef það er ennþá of mikil olía á vélinni þá verður maður að losa olíutappann og hleypa umfram olíu af vélinni. Það sem gerist ef það er sett of mikil olía á vélina er að sveifarásin lemst ofan í olíuna og á þá erfiðara með að snúast sem veldur aukinni bensíneyðslu en það er annað verra. Þegar sveifarásin lemst ofan í olíuna þeytist hún og verður eins og egg sem er búið að þeyta vel. Mikið súrefni er komið saman við olíuna sem veldur neyðarástandi í vélinni með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Vantar þig góð ráð. Sendu Jóni Heiðari póst á netfangið bilar@frettabladid.is
Bílar Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira