Dauðinn er leikur einn 12. júlí 2004 00:01 Þórarinn Þórarinsson hefur komist að því að þeir sem aldrei deyja verða að vanda sig við aðPoppstjörnur, kvikmyndaleikarar og annað frægt fólk úti í hinum stóra heimi er ódauðlegt. Það neyðist auðvitað til þess að geispa golunni fyrr eða síðar eins og við hin en ólíkt okkur hinum dauðlegu lifa þau áfram í minningu allrar heimsbyggðarinnar.Það þarf sterk bein til að lifa í kastljósi fjölmiðla og hafa það hangandi yfir sér að sjálfur dauðinn mun ekki einu sinni slökkva þau ljós og því verða stjörnurnar í raun að lifa lífi sínu öllu þannig að það geti staðið undir eilífiðinni.James Dean, Elvis Presley, Marilyn Monroe, Humphrey Bogart, John F. Kennedy og Winston Churchill og Jónas Hallgrímsson. Það væri alveg galið að halda því farm að þetta fólk sé dautt. Skrautlegt lífshlaup þeirra, afrek í poppmenningunni og á stundum tragískir dauðdagar hafa tryggt þeim eilíft líf. Sama má segja um snillingana Jimi Hendrix, Janis Joplin, Kurt Cobain og Jim Morrison. Öll höfðu þau vit á því að deyja 27 ára og tryggja sér þannig eilíft líf. Þau væru öll örugglega ömurleg og sorgleg gamalmenni hefðu þau ekki dáið á toppnum. Sjáiði bara Paul McCartney.Annars fór ég að pæla í eilífðarmálum stjarnanna eftir að spikfeitt, biturt, geðstirt gamalmenni og jafnvel líka illmenni, Marlon Brando, kvaddi þennan heim á dögunum. Hann var á sínum yngri árum kyntákn, ofurtöffari og frábær leikari en það er hætt við að ferskari minningar um pirruðu fitubolluna skyggi á eilífðarmynd Brandos. Það var mikill afleikur hjá þessum stórleikara að lifa svona lengi. Það hefði verið öllum fyrir bestu ef hann hefði dáið áður en hann lék í Eyju dr. Moreaus. Það nennir enginn að muna til lengdar eftir feitum kalli sem var frábær leikari á milli þess sem hann lék í drasli fyrir peninga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stuð milli stríða Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun