Áströlum og Írökum hótað 25. júlí 2004 00:01
Ástralíu og Ítalíu hafa borist hótanir um hryðjuverk frá samtökum, sem talin eru tengjast Al-Kaída, flytji löndin ekki heri sína heim frá Írak. Utanríkisráðherra Ástralíu segist taka hótunina alvarlega en ekki komi til greina að láta undan kröfum hryðjuverkamanna. Í tilkynningu frá samtökunum, sem kalla sig „Sameinað Íslam“, er löndunum tveimur hótað holskeflu af bílsprengingum dragi þau ekki herlið sín til baka frá Írak. Farið er fram á að 2700 hermenn Ítala og tæplega eitt þúsund hermenn Ástrala haldi heim á leið frá Írak. Að öðrum kosti komi til blóðbaðs í löndunum tveimur. Lífi borgara landanna verði breytt í hreinasta helvíti ef ekki verði farið að fordæmi Spánverja og Filippseyinga. Alexander Downer, utanríkisráðherra Ástralíu, sagði í dag að litið væri alvarlegum augum á hótunina en jafnframt væri það alveg skýrt að ekki kæmi til greina að hlýða kröfum hryðjuverkamanna. Það léki enginn vafi á því að ákvörðun Spánverja um að kalla herlið sitt heim frá Írak eftir sprengingarnar í Madríd, og brotthvarf filippseyska hersins eftir mannrán og líflátshótun á hendur Filippseyingi, hefði styrkt stöðu hryðjuverkamanna. Downer segir hins vegar engan sigrast á hryðjuverkamönnum með því að verða við kröfum þeirra.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira