Pyntingatól í Írak 25. júlí 2004 00:01
Pyntingartól sem Údei Hussein notaði til að refsa íþróttamönnum í stjórnartíð Saddams, föður hans, voru höfð til sýnis á þjóðarleikvangi Íraka í Bagdad í gær. Þetta var gert í tilefni Ólympíuleikanna sem haldnir verða í næsta mánuði til að minna á að ógnarstjórnin sé liðin undir lok. Á íþróttaleikvanginum í Bagdad í gær gaf m.a. að líta fallöxi, kistu með járngöddum innan í og keðjur með stálkúlum á stærð við tennisbolta á endunum. Þessi tól og fleiri voru notuð af hinum illræmda Údei til þess að refsa íþróttamönnum frá Írak sem ekki stóðu undir væntingum. Údei, sem var yfirmaður Ólympíunefndar Íraka í stjórnartíð föður síns, var eins og kunnugt er drepinn af Bandaríkjaher á síðasta ári ásamt eldri bróður sínum, Kúsei. Það er óhætt að segja að íþróttamenn sem reiddu Údei til reiði með slakri frammistöðu hafi ekki verið teknir neinum vettlingatökum þegar hann fór með yfirumsjón íþróttamála í Írak. Þegar frammistaðan var ekki ásættanleg að mati hans voru íþróttamennirnir m.a. látnir ganga berfættir yfir heitt malbik, barðir með keðjum og þeim haldið vakandi svo sólarhringum skipti. Nú eru hins vegar betri tímar í vændum fyrir íþróttamenn í Írak og þeir fá að keppa á Ólympíuleikunum í Aþenu í ágúst eftir að hafa verið í alþjóðlegu banni í rúmt ár.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Sjá meira