Enn barist í Najaf 5. ágúst 2004 00:01
Enn er barist að hluta til á götum borgarinnar Najaf í Írak en að sögn talsmanna bandaríska hersins hefur þeim tekist að einangra uppreisnarmennina og halda þeim í skefjum. Vígamenn gerðu árás á lögreglustöð í borginni í gærkvöldi og í kjölfarið brutust út átök milli lögreglunnar og uppreisnarmanna. Lögreglan neyddist til að kalla til írakska herinn en hann hafði ekki undan og var óskað eftir aðstoð frá Bandaríkjaher. Ástandið var á tímabili svo slæmt að kalla þurfti til bandarískar herþyrlur til að gera árásir úr lofti. Ein bandarísk þyrla var skotin niður en hún var að flytja særðan hermann frá átökunum sem fór að mestu leyti fram í gamla miðbæ Najaf. Þrír hermenn í þyrlunni særðust og voru þeir fluttir burt. Tölur látinna eru enn á reiki en nokkrir írakskir hermenn og uppreisnarmenn létu lífið í bardaganum. Uppreisnarmennirnir eru fylgismenn írakska klerksins Moqtada al-Sadr og er óttast að vopnahlé milli hermanna og fylkingu Moqtada frá því í júní sé úti. Talsmaður Moqtada kenndi írakska og bandaríska hernum um atvikið og sagði þá hafa átt upptökin. Mikil reiði er í borginni því mikilvæg moska varð fyrir skemmdum í átökunum. Gjallarhorn á moskunni hvöttu almenning til að rísa gegn herliðinu vegna skemmdanna.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Erlent „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Innlent Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Erlent Árekstur við Suðurlandsbraut Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Kviknaði í kaffibrennsluofni Innlent Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Innlent Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Innlent Fleiri fréttir Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Sjá meira