Barist í nokkrum borgum 6. ágúst 2004 00:01
Tveir bandarískir hermenn létu lífið í hörðum átökum í Najaf í Írak í dag. Írakskir og bandarískir hermenn berjast við árásarmenn í nokkrum borgum í landinu og ekkert lát er á árásum. Harðir bardagar geisa víða í Írak annan daginn í röð. Uppreisnarmennirnir eru fylgismenn Moqtada al-Sadrs, æðsta klerks sjíta í landinu. Ástandið er verst í borginni Najaf og óhugnalegar myndir berast frá átökunum þar. Að sögn bandaríska hersins liggja 300 andspyrnumenn í valnum. Talsmaður andspyrnuhópsins segir hins vegar að einungis þrjátíu og sex uppreisnarmenn hefðu látið lífið í bardögunum. Tveir bandarískir hermenn létust í dag, einn í gær og fjölmargir eru særðir. Ekki er vitað hvað margir óbreyttir borgarar hafa látist en nokkur hundruð eru særðir. Í Bagdad hafa fjörutíu látið lífið. Uppreisnarmenn kenna hermönnum um upptökin og segist talsmaður Moqtada, sjíta-múslima klerkurinn Mahmoud al-Sudani, vilja koma því á framfæri að það séu Bandaríkjamenn og fylkisstjóri Najaf sem beri ábyrgð á hinu aukna ofbeldi í borginni. Einhverjir uppreisnarmenn hafa hvatt múslima til að grípa til vopna gegn hernámsliðinu en talsmaður Moqtada segist vilja frið. Hann segir náin tengsl á milli hinnar helgu borgar Najaf og annarra borga svo átökin í Najaf muni endurspeglast í öðrum borgum. Múslimar séu hins vegar reiðubúnir að koma á friði í Írak
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira