Bardagar byrjaðir í Najaf 15. ágúst 2004 00:01
Einn fórst og fimm særðust í sprengjuárás í Írak í morgun. Harðir bardagar eru á ný hafnir í borginni Najaf eftir að friðarviðræður fóru út um þúfur. Í morgun komu þrettán hundruð fulltrúar saman á fundi í Bagdad til að velja þing sem hafa á eftirlit með starfi bráðabirgðastjórnar Íraks fram að frjálsum kosningum á næsta ári. Nokkrar sprengingar heyrðust skammt frá fundarstaðnum í morgun en talsmenn stjórnvalda segja þremur sprengjum hafa verið varpað á strætisvagna- og leigubílabiðstöð skammt frá fundarstaðnum. Einn fórst og fimm særðust í árásinni en ekki er vitað hverjir stóðu fyrir henni. Lögreglu og og byssumönnum lenti einnig saman annars staðar í Bagdad. Í helgu borginni Najaf halda harðir bardagar áfram en friðarviðræður stjórnvalda við fulltrúa harðlínuklerksins Muqtada al-Sadrs báru engan árangur. Skæruliðasveitir Sadrs, Mehdi-herinn, sendi andstæðingum sínum skilaboð í morgun þegar lík lögreglumanns fannst illa leikið á fjölförnum stað í Najaf. Maðurinn hafði verið drepinn og augun kroppuð úr tóftunum. Sprengingar heyrast nú í borginni en bandarískar og írakskar sveitir herja nú á Mehdi-herinn. Hollenskur hermaður féll í átökum í bænum Ar Rymaythah í gær og fimm særðust alvarlega í skotárás þar. Hollensk stjórnvöld lýstu því yfir í morgun að atburðurinn myndi ekki breyta stefnunni í Írak og að hersveitir yrðu ekki kallaðar heim þaðan. Myndin er tekin í Najaf í morgun og sýnir bandaríska hermenn reyna að skýla eyrum sínum þegar sprengingar kveða við í borginni.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira