Friðarumleitanir út um þúfur 18. ágúst 2004 00:01
Harðir bardagar geisa í hinni helgu borg Najaf. Friðarumleitanir fóru út um þúfur þegar klerkurinn Muqtada al-Sadr neitaði að hitta friðarsendinefnd í gær. Varnarmálaráðherra Íraks hótar harkalegum viðbrögðum, gefist uppreisnarmenn í borginni ekki upp innan nokkurra stunda. Þó að miðpunktur uppreisnar eða andspyrnu stuðningsmanna Muqtada al-Sadrs sé í Najaf eru harðlínusjítar víðar í suðurhluta Íraks farnir að láta til sín taka. Breskur hermaður féll og annar særðist í átökum við írakskar skæruliðasveitir skammt frá Basra í gær. Talið er að skæruliðarnir þar séu hliðhollir al-Sadr. Í Bagdad hefur einnig komið til átaka, og í morgun var enn á ný varpað sprengjum að fundarstað þjóðarráðs Íraks sem skipa á nýtt þing. Fulltrúar á fundi þjóðarráðsins vilja að stillt verð til friðar í Najaf en al-Sadr neitaði að eiga fund með sendinefnd ráðsins í gær. Fundir ráðsins og skipun þings hefur frestast vegna deilna um framgang mála þar. Varnarmálaráðherra Íraks lýsti því yfir fyrr í morgun að skæruliðar al-Sadrs hefðu nokkurra klukkustunda frest til þess að leggja niður vopn og gefast upp. Öðrum kosti mættu þeir eiga von á ærlegri ráðningu sem þeir myndu aldrei gleyma. Ráðherrann segir að hersveitir yfirvalda og Bandaríkjahers séu reiðubúnar að láta til skarar skríða gegn skæruliðasveitunum.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira