Einvígi Shevchenko og Nedved 17. desember 2004 00:01
Einar Logi Vignisson skrifar vikulega um fótboltann í Suður Evrópu í Fréttablaðið. Að þessu sinni tekur hann fyrir stórleik Juventus og AC Milan á Delli Alpi í kvöld en þar mætast tvö efstu liðin í deildinni. "Einu skiptin þegar mér líður sæmilega á Delle Alpi er þegar Milan kemur í heimsókn og völlurinn er troðfullur," segir Antonio Cabrini, fyrrum vinstri bakvörður Juventus og ítalska landsliðsins til fjölda ára og í hópi leikjahæstu manna fyrir lið og þjóð. Cabrini þykir Alpavöllur "eins og tóm dós" og hljómburður þar "álíka spennandi og í almenningsþvottahúsi". Völlurinn er enda ein misheppnaðasta hönnun síðari tíma og barðist Juventus á tímabili fyrir því að fá gamla bæjarvöllinn, Stadio Communale, opnaðan á nýjan leik en á þeim velli unnu Cabrini og félagar sína stærstu sigra þótt ekki rúmaði hann fleiri gesti en 30.000 og þætti hvorki módern né þægilegur. Eftir áralangt þjark hillir undir að Juventus og Tórínó fái nýjan leikvang en hefð er fyrir því á Ítalíu að sveitungar deili leikvangi og man ég ekki í svipinn eftir öðru nafntoguðu félagi en Bari sem á eigin leikvöll. Gæfan hliðholl Juve Cabrini ætti þó að geta brosað í gegnum tárin í kvöld og náð að berja í sig sæmilega stemmingu í kuldanum í Tórínóborg þegar Juventus tekur á móti AC Milan í leik sem gæti haft mikil áhrif á gang mála næstu mánuðina. Juventus hefur óvænt leitt deildina nánast frá upphafi og landað hverjum sigri á fætur öðrum. Í sveita síns andlits mætti segja um marga þá sigra því þetta hafa verið sigrar vinnusemi, aga og heppni. Auðvitað áttu menn von á liðinu sterku til leiks eins og alltaf í haust en flestir bjuggust við að það tæki Fabio Capello nokkurn tíma að slípa liðið til auk þess sem nokkuð var um mannabreytingar og hópurinn yfir það heila kannski ekki jafn breiður og hjá flestum öðrum stórliðum. En flest hefur gengið í haginn og munar þar mest um að vörn liðsins er líklega sú sterkasta í Evrópu um þessar mundir. Þar hafa leikið manna best Lillian Thuram sem loks fær að leika sem miðvörður eins og hann kýs sjálfur í stað þess að leika í stöðu bakvarðar eins og Marcello Lippi taldi honum hollast. Félagi hans í miðverðinum, Fabio Cannavaro, hefur einnig fundið sitt gamla form en hann var heillum horfinn þær tvær leiktíðir sem hann lék með Inter og lauk vist hans þar með frjálsri sölu í sumar, sem þótti með ólíkindum fyrir jafn góðan leikmann á besta aldri. Milan komið á skrið Ekki hefur Juventus eignast marga nýja vini í haust fyrir fagran leik. Litlum ljóma stafaði né lengstum af Milan þótt þar hafi menn braggast svo mjög upp á síðkastið að andar köldu ofan í hálsmál Juvemanna og gæti toppspilið snúist Milan mjög í hag nái liðið að sigra í kvöld. Mesta athyglin verður á þremur mönnum; Andriy Shevchenko, nýkrýndum knattspyrnumanni ársins í Evrópu, Pavel Nedved sem valinn var í fyrra og Fabio Capello sem klæðst hefur hempum beggja liðanna sem leikmaður og þjálfari. Capello mætir nú Milan í fyrsta sinn sem þjálfari Juve og þótt hann hafi mætt sínu gamla liði áður sem stjórnandi Roma verður þetta svolítið öðruvísi því aðdáendur félaganna hatast og svo lét Capello svo margt ófagurt út úr sér um núverandi vinnuveitendur sína þegar hann stýrði Milan og Roma að það er eiginlega alveg kostulegt að hann skuli hafa verið ráðinn til liðsins. Hafa ítalskir sjónvarpsstöðvar klippt saman skemmtilega búta um orðahnippingarnar og sýnt duglega síðustu daga. Aðdáendur Milan vilja sýna kvislingnum Capello í tvo heimana í kvöld. Framherjinn fjölhæfi Schevchenko hefur alltaf reynst mikill stórleikjamaður. Sama má segja um fyrrum handhafa gullknattarins Pavel Nedved og leikurinn hefur því sums staðar verið persónugerður sem uppgjör þessara tveggja snillinga. Enda þarf oft augnablikssnilld til að rjúfa múra varna sem skellt geta í nær órjúfanlegan lás.
Íslenski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Körfubolti Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Fleiri fréttir Loksins vann Allen í framlengingu Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Formúla 1 snýr aftur til Afríku „Það rignir ekkert inn peningum“ Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Þurfum að vera einbeittar allan leikinn Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Bakgarðsáskorunin: „All-in týpa“ sem elskar Celine Dion Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ „Erum að slípa saman liðið“ Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Sjáðu íslensku eldflaugina frá DJ Sigga Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Fá marbletti og gefa marbletti: „Klárar í slagsmál“ „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ „Svo lélegt að Þorgrímur Þráins var næstum byrjaður að reykja“ Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Sjá meira