Í Bakarabrekkunni við hliðina á veitingahúsinu Lækjarbrekku hafa annars árs nemar í hönnunardeild Listaháskólans opnað jólabúð.

Varningurinn er allur eftir þá sjálfa og þar kennir ýmissa grasa enda stunda nemendurnir nám í fatahönnun, þrívíðri hönnun, arkítektúr og grafík. Þarna eru myndir og glös, fatnaður og plaköt svo eitthvað sé nefnt.
Ágóðinn af sölunni fer í ferðasjóð því nemendurnir, 43 talsins, ætla í 10 daga menningarferð til Kúbu um mánaðamótin janúar-febrúar.
En hvað skyldu þeir helst ætla að læra af Kúbumönnum?

Björg Guðmundsdóttir, sem stendur vaktina í jólabúðinni, verður fyrir svörum. "Við ætlum að vera dugleg að fara á sýningar og njóta þess sem Kúba hefur upp á að bjóða í litum og listum. Þarna hefur fólk ekkert milli handanna nema það sem er heimafengið, öfugt við okkur sem getum farið út í búð og keypt hvað sem er, hvaðan sem er úr heiminum. Það er örugglega hollt fyrir verðandi hönnuði að átta sig á því hvað þeir geta gert úr því sem er í kringum þá og Kúba er ágætur staður til þess."

Spurð hvort þau viti eitthvað um veðráttuna á Kúbu brosir Björg og segir.
"Það er fínt veður þar á þessum tíma en það verður ekkert legið á ströndinni, djammað og djúsað. Þetta er of dýr ferð til þess."
Jólabúðin á loftinu yfir ferðamannamarkaðinum er opin frá 11.00 til 22.00 til jóla og að sögn Bjargar hefur salan gengið ágætlega.
"Trafíkin eykst alltaf þegar líður á daginn," segir hún brosandi og hlakkar til að komast til Kúbu.
