Mikil spenna í Mósúl 22. desember 2004 00:01
Mikil spenna er í borginni Mósúl í Írak sem er í herkví eftir að tuttugu og tveir létust þar í sjálfsmorðssprengjuárás í gær. Óttast er að uppreisnarmenn hyggi á nýja hrinu árása. Bandarískar hersveitir lokuðu fyrir umferð um helstu brýr og umferðaræðar í Mósúl í morgun. Hermenn réðust inn á heimili og skrifstofur um alla borgina í leit að mönnunum sem stóðu á bak við árás á bandaríska herstöð í gær sem kostaði fjórtán bandaríska hermenn, fjóra óbreytta Bandaríkjamenn og fjóra írakska þjóðvarðliða lífið. Íbúar í borginni segja ekki sálu á götum úti og að þriðja stærsta borg Íraks sé eins og draugabær. Upphaflega sögðu talsmenn hersins að sprengjum hefði verið varpað á messatjaldið á herstöðinni en nú bendir allt til þess að maður hafi sprengt sig í loft upp með fyrrgreindum afleiðingum. Hópur róttækra múslíma, Ansar al-Islam, lýsti tilræðinu á hendur sér. Þetta er mannskæðasta árás á bandaríska herstöð frá upphafi stríðs og hún vekur ótta um frekari árásir uppreisnarmanna í aðdraganda kosninganna í janúar. Að ringulreið og stjórnleysi einkenni nú Mósúl, sem fyrir rúmum mánuði var með rólegustu borgum Íraks, segir einnig sitt um ástandið í Írak.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira