Menning

Mantra 4x4

Mantra 4x4 er að grunni til Mercedes Benz Sprinter af 300, 400 og 600 seríu. Bílunum er svo breytt í öflugar fjórhjóladrifsbifreiðar hjá fyrirtækinu Achleitner í Austurríki. Mantra 4x4 er fyrst og fremst ætlað að uppfylla þarfir björgunarsveita, hers, lögreglu, sjúkra- og slökkviliða en einnig verktaka og veitustofnana svo einhverjir séu nefndir. Bíllinn er sömuleiðis góður kostur fyrir farþegaflutninga í erfiðri færð. Bíllinn er væntanlegur hingað til lands í apríl og verður þá hægt að skoða gripinn hjá Ræsi hf. við Skúlagötu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.