Menning

Ekki nauðsynlegt að gera neitt

Fimm daga frí um páska býður upp á skemmtilega skreppitúra út fyrir bæinn og Gullfoss og Geysir eru alltaf freistandi kostur fyrir höfuðborgarbúa. Það gæti þó verið tilvalið að gera meira úr ferðinni og á Gullfossi er fallegt hótel sem býður upp ljúfa gistingu fjarri ys og þys borgarinnar. "Við leggjum aðaláherslu á rólegheit, því okkur finnst ekki nauðsynlegt að fólk sé endilega að gera einhvern helling. Stundum er best að slaka bara á í fallegu umhverfi og láta líða úr sér, ekki veitir fólki af," segir Lára Ágústsdóttir hótelstýra.

"Það þarf hins vegar engum að leiðast hér á Gullfossi, hér eru fallegar gönguleiðir allt um kring og fjórhjólaleiga í næsta nágrenni, svo eitthvað sé nefnt. Við vonum að fólk komi og njóti þess að láta dekra við sig en hér bjóðum við upp á fínar veitingar og nuddpotta við hótelið og svo eru góðar sundlaugar steinsnar í burtu."

Á hóteli Gullfossi eru 16 herbergi með baði og sjónvarpi en hótelið hefur nýlega sett á laggirnar heimasíðuna hotelgullfoss.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.