Menning

Mælt og borað, heflað og límt

Unaðsleg trélykt mætir vitum þegar komið er inn í húsgagnasmíðadeildina. Þar er mælt og borað, heflað og límt, allt undir stjórn Skjaldar Vatnar verkefnisstjóra. Kvenkynið hefur yfirhöndina í deildinni því af fimm nemendum er aðeins einn strákur. Öll eru samferða í náminu, eiga eina önn eftir þegar þessi er búin. "Þetta eru 100 einingar í skóla og 72 vikur hjá meistara," útskýrir Skjöldur. Sesselja Jónsdóttir er að smíða grind að stórum tungusófa með skemli. Hún stefnir á frekara nám erlendis og þá í hönnun. "Þetta er bara stökkpallur;" segir hún. "Ég vildi kunna að meðhöndla efni og kynnast vinnuferlinu í kringum smíðina áður en lengra væri haldið." Skjöldur segir engum vandkvæðum bundið fyrir þá nemendur sem vilja halda áfram í húsgagnasmíðinni að komast að hjá meisturum þegar þessum áföngum lýkur og hann segir sviðið vítt sem við taki. "Það er svo margt sem húsgagnasmiðir gera," segir hann og telur upp. "Þeir sjá um að innrétta þjónustufyrirtæki og hafa sama rétt og húsasmiðir til að smíða stiga, glugga, hurðir og skápa. Svo fara þeir í sérsmíði og viðgerðir. Það þarf marga húsgagnasmiði til að gera við allt það sem bilar og brotnar í gámum á leiðinni til landsins. Sumir færa sig út í hljóðfærasmíði. Það er til dæmis ekki langur vegur frá stólnum sem hann Marteinn er að smíða út í smíði á gítar. "Það passar," segir Marteinn. "Ég hef smíðað gítar og hann virkar!"
Skjöldur Vatnar verkefnisstjóri útlistar námið fyrir blaðamanni og kveðst vera rosalega heppinn að fá að vera innan um unga fólkið.Mynd/Vilhelm
Karítas Sigurbjörg Björnsdóttir og Sandra Dögg Jónsdóttir. Karítas er að smíða borðstofustól.Mynd/Vilhelm





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.