Lífsstíllinn kallar á jeppa 11. apríl 2005 00:01 "
Ég ek um á Nissan Double Cab sem hentar mér afskaplega vel þar sem ég er í hestum og veiðiskap," segir Jón Stefánsson, organleikari í Langholtskirkju. Hann segist ekki vera neinn sérstakur jeppakarl en hafi gerst einn slíkur af stakri nauðsyn. "Minn lífstíll kallar á svona bíl," segir Jón og telur upp helstu kosti bílsins. "Mér þykir mjög gott að vera með aðskilið geymslupláss á pallinum, þannig að það berst til dæmis engin lykt inn í sjálfan bílinn. Og svo bilar hann nánast aldrei og eyðir heldur ekki miklu, " segir Jón og telur það ótvíræðan kost. "Þetta er nú ekkert fínn bíll þannig að maður keyrir á honum hvert sem er. Hann kemur manni þangað sem förinni er heitið, hvort sem er í veiðiskap eða eitthvað annað," segir Jón. Hann segist aldrei hafa lent í ógöngum sem hann hafi ekki geta klórað sig út úr sjálfur. "Ég hef aldrei þurft að láta sækja mig, hef alltaf bjargað mér úr þeim vandræðum sem ég hef lent í," segir Jón og kannski það sé vegna þess að hann segist ekki vera neinn torfærukarl og tekur því enga óþarfa áhættu. "Það má eiginlega segja að þetta sé minn draumabíll og ef ég þyrfti að endurnýja myndi ég sennilega fá mér eins bíl," segir Jón að lokum.
Bílar Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira