Stærri og betri Passat 11. apríl 2005 00:01
Volkswagen Passat var rúmgóður fyrir en hefur stækkað til muna frá eldri útfærslu, lengst um 62 sentimetra, breikkað um 74 og hækkað um 10. Útlitið er mjög mikið breytt og fært til nútímalegra horfs enda eru ein átta ár síðan bíllinn var síðast uppfærður frá grunni. Stærðin skilar sér í góðu plássi fyrir stórt fólk bæði fram í og aftur í. Skottið er einnig stórt og mikið og eitt af skemmtilegu smáatriðunum í búnaði bílsins er einmitt fjarstýrð opnun á skottloki, þ.e. skottið aflæsist ekki bara heldur opnast lokið með fjarstýringunni. Ein nýungin í Passatinum er rafrænn stöðuhemill (EPB) sem kemur í stað hefðbundinnar handbremsu. Stöðuhemillinn nýtist einnig sem neyðarhemill. Rafrænn kveikjulykill er líka skemmtilega útfærður. Honum er komið fyrir í rauf og síðan þrýst innar til að starta bílnum. Á meðal ríkulegs staðalbúnaðar í Passat má nefna ESP stöðugleikastýringu, 6 öryggispúða, rafrænan stöðuhemil, ABS hemla með hemladreifikerfi og hjálparafl fyrir bremsur. Passatinn er fáanlegur í fjórum mismunandi útfærslum, Trendline sem er grunnútfærslan, Comfortline með viðbótarþægindum, Sportline sem er sportleg útfærsla og loks Highline með nokkrum íburði. Bíllin er fáanlegur með fjölmörgum gerðum véla. Fyrst um sinn með 115 og 150 hestafla FSI vélum og 105 og 140 hestafla TDI dísilvélum. Bíllinn er ýmist búinn 5 og 6 gíra beinskiptingu eða 6 þrepa sjálfskiptingu. Síðar á árinu verður hann einnig fáanlegur með DSG sjálfskptingu. Passatinn er sem fyrr framleiddur sem stallbakur og langbakur en langbakurinn er ekki væntanlegur fyrr en í haust. Reynsluekinn var beinskiptur bíll með 1,6 lítra 115 hestafla bensínvél. Sú vél var á mörkum þess að vera nógu öflug til að gera þennan stóra bíl reglulega skemmtilegan í akstri. Mun skemmtilegri voru bílar með stærri vélum sem undirrituð tók aðeins í. Nýr Passat verður sýndur um helgina í Heklu á Laugavegi, Heklu í Reykjanesbæ, Heklu á Selfossi, Heklu á Reyðarfirði og hjá Höldi á Akureyri. Opið er bæði í dag og á morgun frá klukkan 12 til 16.
Bílar Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Lífið Lada Sport okkar tíma Lífið samstarf Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Hugsi yfir reynslulausum sérfræðingum Lífið Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira