Leikjavísir

Sean Connery sem 007

Electronic Arts kynnir næsta leik í hinni vinsælu James Bond seríu, eða From Russia With Love, þar sem Sean Connery mætir aftur sem leyniþjónustumaðurinn 007. Leikurinn verður gefinn út í haust fyrir PlayStation 2, Xbox og Nintendo GameCube. Leikurinn mun byggja á þessari klassísku Bond mynd, en söguþráður hans mun reyndar taka nýjar stefnur miðað við myndina.  Leikmenn munu hitta fyrir nýjar persónur og munu nýjar Bond dömur mæta á svæðið. Sir Sean Connery, sem er að taka þátt í sínum fyrsta tölvuleik, talar einnig fyrir Bond í leiknum. ”Fyrir leikara er þetta ný og spennandi leið til að fá útrás fyrir sköpunargleðina”, segir Connery sjálfur, ”Leikir eru gríðarlega vinsælt afþreyingarefni og ég er mjög ánægður með að fá tækifæri á að taka þátt.” From Russia With Love er gefinn út með leyfi MGM Interactive og er gerður af Redwood Shores studio í Kaliforníu. Myndin var frumsýnd 1963 og fékk Connery góðar viðtökur fyrir leik sinn í myndinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.