Menning

Rambó í Þjóðleikhúsinu

Nærgöngul saga um bróðurást er viðfangsefni íslenska leikverksins Rambó 7 sem frumsýnt verður á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins á fimmtudag. Leikstjórinn segir engan koma heilan út úr þeim hvirfilbyl sem einkenni verkið.

Rambó 7 er nýtt verk eftir Jón Atla Jónasson en þetta er í fyrsta sinn sem Þjóðleikhúsið setur upp verk eftir hann. Leikstjórn er í höndum Egils Heiðars Antons Pálssonar sem einnig starfar fyrir Þjóðleikhúsið í fyrsta skipti. Leikendur eru Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Egill Egilsson og Ólafur Darri Ólafsson, sem öll hafa starfað saman í leikhópnum Vesturporti.

Verkið er nærgöngul saga um ungt fólk sem lifir í erfiðum heimi þar sem ríkir mikil merkingarleysa. Það fjallar meðal annars um það þegar strákur á þrítugsaldri fær skeyti um að bróðir hans hafi trúlega látist við friðargæslustörf í Bosníu. Egill leikstjóri segir að þá byrji einhver sérkennileg átök við það að halda þessum bróðurmissi frá sér.

„Það sem nagar hann að innan er bróðurást,“ segir Egill. „Í þessum heimi er bara mjög erfitt að stóla á einhverja hluti og hlutur eins og ást er ekki eitthvað sem þú getur reiknað með. Við brynjum okkur með sleipiefnum. Þegar helvítis lífið bankar upp á einn daginn, þá fer allt í köku,“ segir Egill.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.