Segja gagnrýni á rannsókn réttmæta 11. ágúst 2005 00:01
Friðrik Þór Guðmundsson og Jón Ólafur Skarphéðinsson, aðstandendur tveggja fórnarlamba flugslyssins í Skerjafirði, hafa sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að skýrsla óháðrar rannsóknarnefndar undir forystu Sigurðar Líndals lagaprófessors var birt. Yfirlýsingin en birt í heild sinni hér. „Skerjafjarðarflugslysið - réttmæt gagnrýni "Frásögn og umfjöllun þess eða þeirra sem sinna verki rannsakandans um málsatvik, hlýtur að taka til atriða sem oft eru viðkvæm, en krefjast samt þess að heiðarlega sé fjallað um þau og að einstök atvik eða málefni séu alls ekki undan skilin aðeins vegna þess að þau eru óþægileg eða snerta hagsmuni einhvers málsaðilans. Sannleikurinn er oft beiskur, en hann er sagna bestur og aðeins hann getur flutt trúverðugan boðskap og fordæmi." - Skúli Jón Sigurðarson, fyrrum formaður RNF, í ársskýrslu nefndarinnar 1997 Í gagnrýni okkar vegna flugslyssins í Skerjafirði 7. ágúst árið 2000 og rannsóknar þess, hefur það ávallt verið leiðarljósið að komast sem næst sannleikanum um hvað það var sem raunverulega gerðist þetta örlagaríka kvöld og í aðdraganda þess. Að allt sem tengdist flugslysinu væri rannsakað fordómalaust og að allir þeir hnökrar sem í ljós kæmu yrðu lagfærðir með því augnamiði að auka flugöryggi og minnka líkur á að hliðstæður atburður gerðist aftur. Skýrsla óháðra breskra flugslysasérfræðinga, sem við réðum til að gera úttekt á rannsókn Rannsóknarnefndar flugslysa (RNF), leiddi til þess að skipuð var sérstök rannsóknarnefnd flugslysa (sRNF) undir formennsku Sigurðar Líndals. Þessi sérskipaða nefnd hefur nú birt skýrslu um rannsókn sína. Niðurstöður nefndarinnar eru fyrir margra hluta sakir athyglisverðar. Í öllum meginatriðum staðfestir hún að gagnrýni okkar var réttmæt. Er þar helst að nefna gallaða rannsókn RNF og fjölmargt í starfsemi Flugmálastjórnar (FMS) sem betur mátti fara. Hin sérstaka rannsóknanefnd kemur með margar tillögur til úrbóta, til viðbótar þeim sem þegar höfðu komið fram hjá RNF. Þar er að finna tillögur til samgönguráðherra um að fjárveitingar til RNF verði auknar til að tryggja öfluga rannsóknargetu og fullnægjandi varðveislu gagna. Til FMS um hert eftirlit með smærri flugrekendum, um hertar verklagsreglur varðandi útgáfu lofthæfiskírteina fyrir flugvélar; um betri verklega þjálfun flugmanna; um hertar kröfur um eldsneytis- og olíuskrár svo og farþegaskrár; um skýrara orðalag flugumferðarstjórnunar og um skýrar reglur varðandi fráhvarfsflug. Til RNF beinir sRNF tillögum um að nefndin setji sér skýrar verklagsreglur varðandi varðveislu flaka og hluta úr þeim; að sönnunargögn séu ekki afhent með ótímabærum hætti; að óháðir aðilar rannsaki hreyfla án aðkomu hagsmunaaðila og um að mannlegi þátturinn verði framvegis skoðaður sem nákvæmast. Auk þess kom það sRNF á óvart að björgunarþættinum skyldi ekki hafa verið gefinn meiri gaumur í upphaflegu skýrslu RNF. Það er freistandi að rifja upp öll þau gagnrýnisatriði sem við komum fram með á sínum tíma, en við látum nægja að vísa á www.flugslys.is hvað það varðar. En úr þessu, er besti mælikvarðinn á það hvort barátta okkar hafi átt rétt á sér og skilað árangri, að finna í þeim fjölmörgu tillögum til úrbóta sem séð hafa dagsins ljós eftir að RNF komst að sinni niðurstöðu í mars árið 2001. Þótt FMS hafi aldrei viðurkennt opinberlega að nokkuð hafi verið að hjá þeim, höfum við fyrir satt að fjölmörgu hafi verið breytt í starfsemi stofnunarinnar í kjölfar gagnrýni okkar. Það má einnig lesa úr skýrslu Ríkisendurskoðanda um stjórnsýsluúttekt á FMS frá árinu 2003. Einnig er eftirtektarvert hvernig sRNF vísar á bug öllum athugasemdum FMS við skýrsluna, mótbárum sem stofnunin hefur iðulega komið með við gagnrýni á sig í tengslum við Skerjafjarðarflugslysið. Eftir rannsókn sRNF þarf ekki nokkur maður að velkjast lengur í vafa um að flugvélin TF-GTI hafi ekki átt að fá skráningar- og lofthæfiskírteini á sínum tíma. sRNF telur þó að þessi staðreynd hafi engan þátt átt í flugslysinu. Fyrir okkur sem misstum kæra ástvini í flugslysinu lítur málið öðru vísi út. Án þessara pappíra hefði flugvélin einfaldlega ekki verið í umferð umræddan dag. Friðrik Þór Guðmundsson og Jón Ólafur Skarphéðinsson Höfundar eru aðstandendur tveggja fórnarlamba flugslyssins í Skerjafirði“
Flugslys í Skerjafirði 2000 Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Fleiri fréttir Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Sjá meira