Ungir á óperur 29. september 2005 00:01
Efnilegur barnasöngvari varð til þess að Íslenska óperan ákvað að setja upp Tökin hert eftir Benjamin Britten í vetur. Ýmislegt fleira mun þó rata þar á svið, og er stefnt að því að meðalaldur óperugesta lækki umtalsvert, því að allir yngri en 26 ára fá helmingsafslátt á þessa vinsælu óperu Brittens. Dagskrá Íslensku óperunnar var kynnt með pompi og prakt í dag. Tökin hert og Öskubuska eftir Rossini verða stærstu verkefni vetrarins, auk óperettunnar Nótt í Feneyjum og fjölmargra annarra verkefna af ýmsum toga, svo sem málþinga og hádegistónleika. Óperustjórinn segir alltaf erfitt að velja aðalverkefni, en Tökin hert hefur aldrei verið sett upp hérlendis fyrr. Óperustjórinn, Bjarni Daníelsson, segir ungan efnilegan söngvara takast á við burðarhlutverk í Tökin hert, Ísak Ríkharðsson, og því sé uppsetningin meðal annars möguleg. Öskubuska Rossinis hefur heldur aldrei verið sett upp hér fyrr. En Íslenska óperan stefnir líka að því að laða yngri gesti inn í Gamla bíó í vetur. Þannig á að bjóða öllum gestum yngri en 26 ára helmingsafslátt af miðaverði á óperu Brittens, Tökin Hert.
Tónlist Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira