Eiður Smári samdi við Barcelona 17. júní 2006 08:30 Samheldin fjölskylda. Fortíð, nútíð og jafnvel framtíð íslenskrar knattspyrnu er hér saman komin eftir blaðamannafund landsliðsfyrirliðans Eiðs Smára Guðjohnsen. Arnór Guðjohnsen, faðir Eiðs Smára, stendur hér lengst til vinstri og virðir fyrir sér Daníel Tristan Guðjohnsen í faðmi móður sinnar, Ragnhildar Sveinsdóttur. Fyrir miðju eru þeir feðgar Sveinn Aron og Eiður Smári. MYND/GVA
Eiður Smári er fremsti íþróttamaður Íslendinga í dag. Hann fæddist 5. september árið 1978 og verður því 28 ára gamall síðar á árinu. Eiður er af mikilli knattspyrnufjölskyldu kominn en faðir hans, og nú umboðsmaður, er Arnór Guðjohnsen, einn fremsti knattspyrnumaður Íslands í áraraðir. Arnór átti farsælan feril, þá helst hjá Anderlecht í Belgíu. Móðir Eiðs heitir Ólöf Einarsdóttir. Eiður fæddist í Reykjavík en ólst að hluta til upp í Belgíu þar sem hann sást varla án þess að hafa fótbolta við hönd. Hann æfði með drengjaliðinu Brussegemi og fór strax að sýna undraverða hæfileika með knöttinn. Eiður var markaskorari mikill og Arnór lýsti því yfir að hann dreymdi um að spila með Eiði. Það gerðist þó aldrei. Fyrsta lið Eiðs Smára á Íslandi var ÍR en hann færði sig um set til Vals þegar hann var fjórtán ára gamall og ári síðar byrjaði hann að spila með meistaraflokki félagsins. Eiður var 15 ára og 250 daga gamall þegar hann lék fyrsta leik sinn í efstu deild á Íslandi, þann 23. maí 1994. Hann varð þar með yngsti leikmaður til að spila í efstu deild og var valinn efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins það ár. Barcelona var eitt af liðunum sem sýndi Eiði Smára áhuga þegar hann var 16 ára en hann kaus að ganga til liðs við PSV Eindhoven í Hollandi. Eiður komst fljótlega í aðallið stórliðsins og skoraði sitt fyrsta mark í öðrum leik sínum með PSV. Aðalframherji PSV á þeim tíma var Brasilíumaðurinn Ronaldo sem nú leikur með Real Madrid og stendur í ströngu með heimsmeisturum Brasilíu á HM í Þýskalandi. Draumur þeirra feðga um að spila saman var nálægt því að rætast þann 24. apríl 1996 þegar þeir voru báðir valdir í íslenska landsliðið sem lék gegn Eistum í Tallin. Þá hafði dreymt um að spila saman en Arnór var kallaður af velli fyrir Eið og því spiluðu þeir aldrei saman. Stuttu síðar gerðist afdrifaríkt atvik sem átti eftir að hafa mikil áhrif á feril Eiðs. Hann var þá í leik með íslenska ungmennalandsliðinu sem mætti Írum, í leik sem Eiði var bannað af spila af PSV. Eiður Smári meiddist í leiknum eftir slæma tæklingu og eftir ítarlega skoðun kom í ljós að hann var ökklabrotinn og með slitin liðbönd. Eiður Smári fór í fjölda aðgerða vegna meiðslanna og var frá í tvö ár. Eiður gekk til liðs við KR árið 1998 en lék aðeins sex leiki með liðinu og verður það seint talinn frægðartími á hans ferli. Eiði Smára hafði þó verið boðið út til æfinga með enska liðinu Bolton en þá voru bæði Guðni Bergsson og Arnar Gunnlaugsson hjá 1. deildarfélaginu á Englandi. Fljótlega náði Eiður upp góðu leikformi og stóð sig ágætlega á tímabilinu með Bolton. Á næsta tímabili var svo komið að Eiði Smára að skína. Hann stóð sig frábærlega og skoraði tuttugu mörk fyrir Bolton í öllum keppnum. Þrátt fyrir að vera meðal bestu manna liðsins neyddist félagið til að selja Eið eftir aðeins tvö tímabil, þar af nánast aðeins eitt þar sem hann gat spilað af fullum krafti. Enska úrvalsdeildarliðið Chelsea festi kaup á Eiði Smára fyrir 4 milljónir punda og gerði hann fimm ára samning við félagið sem var stýrt af Ítalanum Gianluca Vialli. Chelsea var stórt lið á enskan mælikvarða en ekki nálægt því sem það er í dag. Eiður spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Manchester United og vann þegar sinn fyrsta titil með félaginu. Claudio Ranieri tók fljótlega við af landa sínum en það breytti stöðu Eiðs ekki mikið. Eiður spilaði mikið fyrir Chelsea og skoraði þrettán mörk á tímabilinu. Svipað og gerðist hjá Bolton sló Eiður svo í gegn á sinni annarri leiktíð. Hann náði vel saman með Jimmy Floyd Hasselbaink í sókninni þar sem þeir töluðu oft á tíðum saman á hollensku til að rugla varnir andstæðinganna. Eiður skoraði 24 mörk á sínu besta tímabili með Chelsea. Næsta tímabil hrjáðu meiðsli Íslendinginn sem skoraði tíu mörk í mun færri leikjum en hann spilaði árið áður. Chelsea var mjög illa statt fjárhagslega en náði þó með naumindum að vinna sér inn sæti í Meistaradeild Evrópu á tímabilinu 2003-2004. Sumarið 2003 keypti milljarðamæringurinn Roman Abramovich svo félagið og breytti þar með knattspyrnuheiminum. Með innkomu allra þeirra peninga sem Abamovich hafði yfir að ráða gat Chelsea keypt nánast hvaða leikmann sem þeir vildu. Eiður Smári fór þó ekki frá liðinu eins og margir leikmenn og enn meiri breytingar voru gerðar árið 2004 þegar Jose Mourinho tók við liðinu. Eiður Smári hélt þó alltaf sæti sínu annað en margir sem hurfu á braut. Á tímabilinu 2004-2005 skoraði Eiður Smári sextán mörk, mörg hver mjög mikilvæg, en hann var þó ekki fastur byrjunarliðsmaður. Samkeppnin um stöður í Chelsea liðinu var gríðarlega hörð en Eiður náði samt alltaf að skora sín mörk og fyrir það var hann mikils metinn hjá stuðningsmönnum Chelsea sem varð Englandsmeistari á tímabilinu. Á tímabilinu 2005-2006 fékk Eiður svo nýtt hlutverk hjá Jose Mourinho þegar hann var færður aftar á völlinn, á miðjuna. Það sýndi sig strax í því að Eiður skoraði mun minna en hann náði aðeins að skora þrjú mörk á tímabilinu, tvö í deildinni og eitt í bikarkeppninni. Hann hefur aldrei skorað jafn fá mörk á einu tímabili og nú. Eitt helsta vopn Eiðs er útsjónarsemi hans og auga fyrir spili. Auk þess kemur hann boltanum mjög vel frá sér og nýttist þessi hæfileiki hans mjög vel á miðjunni en hann lagði upp mörg mörk en náði ekki frekar en fyrri daginn að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Innlendar Íþróttir Spænski boltinn Mest lesið Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Handbolti Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Gjöf frá mömmu vatt rækilega upp á sig Sport Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Enski boltinn Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Körfubolti Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Körfubolti Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Enski boltinn Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Fótbolti Dagskráin í dag: Doc Zone, frábærir leikir í enska og Bónus-deild kvenna Sport Fleiri fréttir Arne Slot: „Þetta er síðasta spurningin sem ég átti von á“ 149 tyrkneskir dómarar í bann vegna veðmála Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Sandra hélt áfram að fagna eftir landsleikina Ísland fær eitt lakara lið í sinn riðil Sjáðu besta liðið í föstum leikatriðum leika listir sínar Barcelona skuldar mest en Tottenham er númer tvö Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Mikilvægt fyrir United að hamra járnið meðan það er heitt Félagið í greiðslustöðvun en borgaði öll laun degi fyrr Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Nýr þjálfari Juventus er með Napoli-húðflúr „Nú er nóg komið“ Skortir Liverpool breidd þrátt fyrir gríðarleg fjárútlát síðasta sumar? Sádar eru ekki að fara að byggja HM-leikvang ofan á skýjakljúfi Hetja Englands á EM sleit krossband Lofar frekari fjárfestingum Juventus ræður Spalletti út tímabilið Meistaradeildin skiptir um bjór og Heineken snýr sér að padel Aron Einar kominn á toppinn Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi Fantasýn: „Þessi vörn er eitthvað skrímsli“ Sjá meira