Ógjörningur 4. nóvember 2006 12:15 Curver Thoroddsen Mennskur og meðvitundarlaus strigi.
Myndlistarmaðurinn Curver Thoroddsen sýnir nektarverk sitt „Án titils“ í galleríi Boxi á Akureyri. Verkið er aðeins flutt nú um helgina. „Þetta er fyrsti nektargjörningurinn minn en þetta er viðfangsefni sem er dálítið tengt verki sem ég gerði fyrir 30 ára yfirlitssýninguna mína í febrúar,“ segir Curver. „Þetta er svona nokkurn veginn mitt á milli þess að vera innsetning eða gjörningur, reyndar mætti kalla þetta ógjörning því ég geri ekki neitt – ég verð alveg meðvitundarlaus á meðan á þessu stendur.“ Curver hefur snúið sólarhringnum við og mun nota svefnlyf til þess að ná fram þessu meðvitundarleysi. „Það er mjög mikilvægt því ég er ekkert að þykjast. Það er meiri sannleikur í þessu ef maður er hreinlega varnarlaus. Þetta er það sem það er. Ég hef líka forðast að láta mikið uppi með mínar eigin pælingar. Þess vegna heitir verkið „Án titils“ því það vísar ekki til neins annars – fólk getur nálgast þetta á eigin forsendum, næstum eins og tóman striga.“ Þetta persónulega verk kannar því hvernig er að vera inni í herbergi með rænulausum allsberum manni og Curver bendir á að ýmiss konar tengingar komi í ljós og fólk þurfi alls ekki að vera feimið að mæta. Hann muni til dæmis ekki vita neitt af áhorfendunum. Sýningin stendur milli kl. 14-17 í dag og á morgun.
Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira