Tveggja turna tal komið út 15. nóvember 2006 14:00 Gunnar Gunnarsson Ferill hans frá unga aldri til æviloka er rakinn í Skáldalífi.
Í dag kemur út rit Halldórs Guðmundssonar bókmenntafræðings, Skáldalíf - ofvitinn í Suðursveit og skáldið á Skriðuklaustri, um þá Gunnar Gunnarsson og Þórberg Þórðarson. Rannsóknarverk Halldórs er um fimm hundruð síður, ríkulega myndskreytt með skrám mynda, heimilda og nafnaskrá. Í ritinu fjallar Halldór um þessa tvo jöfra íslenskrar sagnaritunar á síðustu öld og gerir upp hlut þeirra, æviferils þeirra í skáldskapnum og hvernig báðir læstust inni í stjórnmálaátökum sinnar aldar. Skammt er síðan Halldór sendi frá sér viðamikið rit um Halldór Laxness, rétt eins Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Hlaut hann Bókmenntaverðlaun fyrir í flokki fræða. Það var við vinnslu þess verks sem hugmyndin um tveggja-stjörnu rit um þá Þórberg og Gunnar kviknaði. Formið kom mörgum spánskt fyrir sjónir en Halldór sækir það í ævaforn rit Plútarks sem setti saman slík rit um samanburð eða hliðstæður mikilmenna úr grískri og rómverskri sögu. Halldór fer ekki launkofa með að hann stendur í rannsóknum sínum á herðum fyrri manna sem unnið hafa úttektir á ferli þeirra Gunnars og Þórbergs: Sveinn Skorri Höskuldsson hafði unnið lengi að rannsóknum á Gunnari Gunnarssyni, Þór Whitehead rakti tengsl hans í Þýskalandi fyrir stríðið 1939 til 1945. Rannsóknir Helga M. Sigurðssonar og fleiri. Ýmsir þræðir liggja því að þessu mikla verki, bæði úr útgefnum gögnum og öðrum sem geymd eru í söfnum, þar á meðal eru persónuleg gögn þeirra skáldbræðra. Margt kemur á óvart í bók Halldórs. Hér er að finna lýsingar á árunum sem þeir báðir hleypa heimdraganum og búa við allsleysi og nánast hungur fjarri heimaslóðum, skútulífi Þórbergs og fyrstu árum Gunnars í Danmörku. Hér er tæpt á persónulegum málum þeirra: ástarsambandi Þórbergs veturinn 1917 til 1918 við unga stúlku sem fátt hefur verið vitað um, þótt faldar vísanir í það samband finnist í Bréfi til Láru, Eddu og Ofvitanum. Nú er hún nafngreind, Finnlaug Einarsdóttir úr Flatey. Vel kann að vera að samband þeirra hafi borið ávöxt og segir Halldór frá því í verkinu. Áður var vitað um dóttur Þórbergs úr sambandi hans við Sólu, en bréfaskipti þeirra Þórbergs voru efni bókar á sinni tíð, Bréf til Sólu. Sem kunnugt er áttu þau Sóla dóttur sem var alla tíð sniðgengin. Persónulegir hagir Gunnars Gunnarssonar skýrast enn frekar en áður í ritverki Halldórs: hann lenti í löngu ástarsambandi við Ruth Lange, eiginkonu Tom Kristiansen, og er í Skáldalífi rakið í fyrsta sinn hvern hug Ruth bar til þessa sambands með ívitnunum í áður óbirt bréf hennar. Meginverkefni rannsóknar Halldórs eru hin stjórnmálalegu afskipti þessara tveggja höfunda sem báðir stigu nærri þeim félögum Hitler og Stalín. Þannig snertir Halldór bæði á einkasviði þeirra og hinu opinbera. Þar er í fyrsta sinn rakið hvernig pólitíkin kom inn í líf þeirra og hvernig hugur þeirra þróaðist í tvær gagnstæðar áttir og staðnaði í raun á tímabili. Rannsókn Halldórs og samantekt verður að telja með stærstu bókmenntasögulegum tíðindum þessa árs.
Menning Mest lesið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Miðflokkskonur gera sig klárar í bátana Lífið Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana Tónlist Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Tóti og Ósk eiga von á túrbóbarni Lífið Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2026 Lífið Fleiri fréttir Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Andrew á Louvre Kinký bangsar og leðurklæddir kroppar „Ósmekkleg“ meðferð á eldri leikurum og álagið keyrt upp Forsetinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið „Ný sýn, nýr heimur“ Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Alaska og Birnir sigursæl Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Sjá meira