Léleg hús, spákaupmennska og bílastæðakverúlantar 14. mars 2006 14:30 Útlendingur sagði við mig um daginn að Reykjavík væri "borg byggingakrananna". En það er athugunarefni hversu mikið af því sem er verið að byggja nú í góðærinu er lélegt. Maður heyrir sögur af flausturslegum vinnubrögðum og hryllilega slæmum frágangi. Ekki síst er maður hugsi yfir kassalaga húsum með flötum þökum sem er farið að reisa bæði í úthverfunum og á stangli um bæinn. Það er nákvæmlega ekkert lagt í þessar byggingar. Þær gætu eins verið í einhverju fátækrahverfi. Svo hélt ég reyndar að Íslendingar hefðu komist að því fullkeyptu með flötu þökin á sjöunda og áttunda áratugnum. En allt fer víst í hring. Það hefur samt ekki breyst að veðráttan hérna heimilar ekki þetta byggingarlag. --- --- --- Það er náttúrlega freisting að byggja hratt og illa þegar verðið er svona hátt. Það er líka mikið um spákaupmennsku og brask á fasteignamarkaði. Verktakar og fasteignasalar maka krókinn. Þeir hugsa aðallega í prósentum og nýtingarhlutfalli. Fagurfræði, gott handverk og ending eru neðar á forgangslistanum. Í þeirri merku bók Freakonomics stendur að fasteignasalar séu vita óþarfir - það sé ekki sé nokkur ástæða til að skipta við þá. Fasteignasalar vilja yfirleitt reyna að ganga frá kaupum eins fljótt og hægt er, þeir sjá lítinn hag í því að reyna að knýja fram hærra verð - það hækkar þóknun þeirra ekki svo mikið - heldur er arðbærara fyrir þá að hraða sér að ganga frá sölu og snúa sér svo að næstu eign. Að baki þessu liggja rannsóknir sem sýna að fasteignasalar selja hús sem þeir eiga sjálfir yfirleitt á hærra verði en eignir annarra. --- --- --- Verðmætamatið er líka oft dálítið ferkantað. Formaður félags fasteignasala gagnrýnir byggingu tónlistarhússins við höfnina, segir að borgin hefði getað fengið miklu hærra verð fyrir lóðina. Jú, verðið hefði ábyggilega getað verið hærra ef reist hefði verið verslunarmiðstöð eða röð háhýsa. En nú er búið að ákveða að byggja tónlistarhús - fasteignakaupmenn bíða kannski ekki í biðröðum eftir að leggja aurana slíka í þessháttar menningarsetur. Sérstaklega ekki af því að þetta hús verður að vera rosalega flott. Það má alls ekki klikka. Kassarnir sem eru að rísa út um alla borg eru víti til að varast. --- --- --- Eitt afbrigði þess sem kallast nimbyismi er bílastæðakverúlantisminn - sú ruglaða hugmynd að hægt sé að sjá öllum fyrir bílastæðum þar sem þeim þóknast að leggja. Í fáum borgum í heiminum fer meira flæmi undir samgöngumannvirki og bílastæði, en samt þykir ekki nóg að gert. Sjálfur bý ég í hverfi þar sem er ekki alltaf hægt að fá bílastæði. Þegar ég flutti í húsið vissi ég að þetta gæti verið svona - ég gerði ekki ráð fyrir að hafa alltaf autt bílastæði fyrir utan dyrnar. En ef ég legði ofuráherslu á að hafa bílastæði, þá myndi ég þurfa að flytja eitthvað annað. Það er einfalt. Þá væri heppilegra fyrir mig að búa í úthverfi. --- --- --- Hlutabréfamarkaðurinn hefur aðeins reist við í dag. Það er stundum fyndið að fylgjast með greiningardeildunum. Í gær sagði einn greiningardeildarmaðurinn að hlutabréfakaup séu langhlaup en ekki spretthlaup. En í dag eftir að bankarnir höfðu lækkað nokkuð segir sama greiningardeildin að nú sé kauptækifæri í bönkunum. Skyldu það vera tækifæri fyrir langhlaupara eða spretthlaupara? Flestum ber jú saman um að markaðurinn hér sé enn á yfirsprengdu verði. --- --- --- Það eru ekki bara dönsk og norsk blöð sem fjalla um íslenska efnahagslífið. Hið virta blað Daily Telegraph gerir það að umfjöllunarefni í dag. Einn hagfræðingurinn sem blaðið talar við segir að íslenskt þjóðfélag sé einn vogunarsjóður - "the whole country has become a hedge fund". Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pistlar Silfur Egils Skoðanir Mest lesið Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun