Eftirlit verður haft með eignum Varnarliðsins 24. júlí 2006 12:00
Utanríkisráðuneytið hefur, fyrir hönd Varnarliðsins, auglýst eftir verktökum til að annast viðhald og eftirlit með eignum Atlantshafsbandalagsins á Keflavíkurflugvelli, eftir að Varnarliðið fer í haust. Varnarlilðið sjálft hefur hins vegar ekki óskað eftir eftirliti með sínum eignum. Varnarliðið ser skuldbundið gagnvart NATO til að viðhalda eignum bandalagsins í eitt ár eftir að það hættir að nota þau þannig að NATO mannvirkin verða að minnstakosti ekki látin grotna niður næsta árið. Það eru eingöngu hernaðarmannvirki eins og stjórnstöðvar, flest flugskýlin og megnið af olíubirgðamannvirkjum við Helguvík, sem teljast til einga NATO, en Varnarliðið, eða Bandaríkjamenn eiga öll veitukerfi, þjónustubyggingar eins og verslanir, íþróttahús, skóla og heilsugæslu, ásamt skrifstofuhúsnæði, einhverjum flugskýlum, og hluta mannvirkja í Helguvík. Allt er enn á huldu með ráðstöfun þeirra mannvirkja, en það verður til umræðu á næsta fundi fulltrúa Bandaríkjamanna og Íslendinga í byrjun ágúst. Aðeins 500 varnarliðsmenn verða eftir á Keflavíkurflugvelli um næstu mánaðmót, en þegar flest var fyrir tíu til 15 árum voru 5.500 Bandaríkjamenn í varnarliðinu hér.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira