Tónlist

Eingöngu lög og textar eftir konur

Á morgun kemur út geisladiskurinn Sögur af konum þar sem Selma og Hansa syngja 12 ný lög eftir íslenskar konur.

Sögur af konum inniheldur 12 ný íslensk lög og texta eftir íslenskar konur. Selmu og Hönsu langaði til að gera tónlistarkonum á Íslandi hátt undir höfði og velja eingöngu lög og texta eftir konur. Textarnir endurspegla hugðarefni höfunda og voru þeim engar línur lagðar varðandi yrkisefni. Var leitað til breiðs hóps tónlistarkvenna og 12 lög valin á plötuna.

Eftirfarandi lagahöfundar koma við sögu á plötunni:

Ragnhildur Gísladóttir, Margrét Örnólfsdóttir, Ingibjörg Þorbergsdóttir, Fabúla, Anna Halldórsdóttir, Móeiður Júníusdóttir, Védís Hervör Árnadóttir, Hera Hjartardóttir, Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir ( Hansa).

Textagerð var í sumum tilvikum í höndum lagahöfunda en einnig koma við sögu Unnur Ösp Stefánsdóttir, Þórdís Elva Bachman, Andrea Gylfadóttir, Selma Björnsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Jakobína Sigurðardóttir. Guðmundur Kristinn Jónsson og Sigurður Guðmundsson, sem báðir eru betur þekktir sem meðlimir Hjálma, sáu um upptökur og útsetningar laganna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.