Metsöluljóð! Ljóðabók Ingunnar Snædal uppseld 29. nóvember 2006 17:00
Ljóðabókin Guðlausir menn, hugleiðingar um jökulvatn og ást eftir Ingunni Snædal er uppseld hjá forlaginu. Ekki ein einasta bók á lager. Bókin er búin. Einhver eintök eru enn til í bókabúðum, en þau eru ekki mörg og fara líklega fljótt. Viðtökurnar við þessari ljóðabók hafa verið undursamlegar. Virðulegir ritdómarar hafa iðrast þess að hafa nokkurn tímann látið hvarfla að sér að ljóðið væri dautt og hugfangnir lesendur hafa sent forlaginu bréf og sagst hafa hlegið og grátið með Ingunni í strætó. Ingunn Snædal er fædd á Egilsstöðum, uppalin á Jökuldal og hefur búið á Spáni, Írlandi, í Kostaríku, Danmörku, veturlangt á Aran-eyjum út af vesturströnd Írlands og til skamms tíma í Mexíkó. Hún er miðbarnið í fimm systkina hópi og hefur áður sent frá sér ljóðabókina Á heitu malbiki árið 1995. Ingunn hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrr í haust fyrir handritið að ljóðabókinni Guðlausir menn, hugleiðingar um jökulvatn og ást. Önnur prentun er væntanleg innan skamms.
Lífið Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira