Söngleikjafár á fjölunum á næstunni 12. janúar 2007 08:00 Dr. Gunni skrifaði Abbababb ásamt Felix Bergssyni, samdi fleiri lög og tekur þátt í flutningi á þeim.
Fimm íslenskir söngleikir eru væntanlegir á fjalirnar í vor og haust og má því með sanni segja að söngleikjafár ríði nú yfir landið. Abbababb, byggt á samnefndri plötu Dr. Gunna, ríður á vaðið, en það verður frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu í byrjun febrúar. Dr. Gunni er potturinn og pannan í uppsetningunni: hann skrifaði verkið ásamt Felix Bergssyni, samdi fleiri lög í sýninguna og tekur þátt í tónlistarflutningum. Sigurjóni Kjartanssyni mun einnig bregða fyrir í hlutverki herra Rokk, fígúru sem þekkt er af barnaplötunni góðu. söngleikjahöfundur Leg, eftir Hugleik Dagsson, verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í febrúar. Þjóðleikhúsið frumsýnir Leg eftir Hugleik Dagsson í febrúar. Davíð Þór Jónsson og hljómsveitin Flís standa fyrir tónlistinni í verkinu, sem fjallar um ástir og örlög óléttu unglingsstúlkunnar Kötu. Með hlutverk Kötu fer Dóra Jóhannsdóttir, en með henni á sviðinu verða meðal annars Atli Rafn Sigurðarson, Halldóra Geirharðsdóttir, Kjartan Guðjónsson og Elma Lísa Gunnarsdóttir. leikstýrir ást Gísli Örn leikstýrir söngleik um eldri borgara, sem hann og Víkingur Kristjánsson sömdu saman. Ástir og örlög eru einnig í brennidepli í söngleiknum Ást eftir Gísla Örn Garðarsson og Víking Kristjánsson, sem fjallar um tvo eldri borgara á elliheimili. Víkingur fer með hlutverk í sýningunni, sem Gísli Örn leikstýrir, en aðalhlutverkin eru í öruggum höndum þeirra Kristbjargar Kjeld og Magnúsar Ólafssonar. Magnús kemur þannig í stað Ragga Bjarna, sem upphaflega var orðaður við hlutverkið. Þeir Vesturportsbræður velja tónlistina ásamt Pálma Sigurhjartarsyni, en þar verða nýleg íslensk og erlend lög áberandi. Kór eldri borgara tekur jafnframt þátt í sýningunni, sem stefnt er á að frumsýna í Borgarleikhúsinu um miðjan febrúar. Söngleikjakóngur Rúnar Freyr Gíslason hefur leikið í ófáum söngleikjum og leikstýrir nú Gretti í Borgarleikhúsinu. Rúnar Freyr Gíslason leikstýrir Gretti eftir Ólaf Hauk Símonarson, Þórarin Eldjárn og Egil Ólafsson undir sama þaki. Söngleikurinn fjallar um átök ungmennisins Grettis við frægð og frama og sjónvarpsdrauginn Glám. Halldór Gylfason fer með hlutverk Grettis en tónlistarstjóri er Hallur Ingólfsson. Halli til fulltingis eru þeir Jón Atli Helgason úr Hairdoctor og Elís Pétursson og Þorbjörn Sigurðsson úr hljómsveitinni Jeff Who? Frumsýningardagurinn er 23. mars næstkomandi en æfingar hefjast í næstu viku. í leikhúsið Jón Atli úr Hairdoctor leggur tónlistarstjóranum Halli lið í Gretti. Sokkabandið, sem samanstendur af leikkonunum Elmu Lísu Gunnarsdóttur og Arndísi Hrönn Egilsdóttur, vinnur að söngleiknum Hér og nú, sem er byggður á glanstímaritum og fólkinu sem prýðir síður þeirra. Hjálmar Hjálmarsson leggur þeim stúlkum lið, en Baggalútur mun sjá um texta og tónlist. Að sögn Elmu Lísu mun leikhópurinn, sem enn er óákveðinn, og Baggalútur semja handritið saman, en vinna við söngleikinn er á frumstigi. Sokkabandið áformar frumsýningu í haust en enn er óvíst á hvaða fjalir verkið kemst.
Mest lesið Allt ætlaði um koll að keyra í Borgarleikhúsinu Lífið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Lífið samstarf „Stolt af því að hafa ekki gefist upp á sjálfri mér“ Lífið Eldgos og elskhugar á frumsýningu Eldanna Lífið Yfir sig ástfangin og býr bæði á Spáni og Íslandi Lífið Fleiri fréttir Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Sjá meira
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“