Sáttir við Prince 12. febrúar 2007 08:00 Hljómsveitin Foo Fighters er ánægð með að Prince skuli hafa sungið lagið Best of You. MYND/Heiða
Rokksveitin Foo Fighters er ánægð með ákvörðun Prince um að syngja lag hennar Best of You í hálfleik á úrslitaleik bandarísku NFL-deildarinnar í fótbolta, Super Bowl hinn 4. febrúar. „Ég hef ekki hugmynd um hvers vegna hann gerði þetta og það væri gaman að vita það. Kannski var hann að gera lítið úr okkur með þessu eða kannski finnst honum lagið bara flott," sagði Taylor Hawkins, trommari Foo Fighters. prince leyfði Foo Fighters ekki að gefa út Darling Nikki í Bandaríkjunum. „Hvað sem því líður var frábært að náungi eins og Prince syngi lag eftir okkur og hann gerði það eiginlega betur en við." Foo Fighters hefur á ferli sínum gefið út tvær útgáfur af lögum Prince á B-hliðum sínum, annars vegar Darling Nikki og hins vegar Drive Me Wild. „Við vildum gefa út Darling Nikki í Bandaríkjunum en Prince leyfði okkur það ekki. Ég heyrði að honum líkaði ekki útgáfan okkar eða kannski var hann bara ekki ánægður með að við værum að spila lagið," sagði Hawkins. Foo Fighters er um þessar mundir að undirbúa sína næstu plötu sem mun fylgja á eftir In Your Honour sem kom út 2005. .
Mest lesið Hver er maðurinn? Lífið Tók með sér leynihráefnið, Camembert-brennivín Lífið „Eru þær í alvöru tvíburar?“ Lífið Laufey „splittaði G-inu“ á tónleikum í Dublin Lífið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Salurinn fylltist í þrígang á fimmtíu ára afmælistónleikum Lífið Kórstjórinn sem ól upp kynslóðir Kársnesbúa: „Sönglaus skóli er hjartalaus skóli“ Lífið Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Lífið Fréttatía vikunnar: Bíll, belja og Bandaríkjaforseti Lífið Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Fleiri fréttir Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira