Skáldið Jón Laxdal 16. febrúar 2007 07:00 Hinn fjölhæfi Jón Laxdal les úr verkum sínum á bókmenntakvöldi Populus Tremula. Mynd/spessi
Ljóðskáldið Jón Laxdal Halldórsson er ef til vill betur þekkt fyrir myndlist sína en skáldskap en á því verður gerð bragarbót í kvöld. Norður á Akureyri eru haldin bókmenntakvöld á vegum menningarsmiðjunnar Populus Tremula en smiðja sú starfar í Listagilinu þar í bæ. Sigurður Ólafsson heimspekingur mun í kvöld fjalla um skáldið Jón Laxdal sem sjálft mun lesa upp úr verkum sínum. Af sama tilefni kemur út á vegum Populus Tremula ljóðakver með úrvali kvæða eftir höfundinn. Bókin er gefin út í hundrað tölusettum og árituðum eintökum og verður til sölu á staðnum fyrir litlar þúsund krónur. Er þetta í fyrsta sinn sem Populus tremula gefur út slíkt rit en stefnt er að því að gefa út þrjú önnur rit til vors. Dagskráin í kvöld hefst kl. 21, aðgangur er ókeypis og eru malpokar leyfðir.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira