Snætt úti þegar þú ert...
...á kúpunni » Bæjarins bestu, Tryggagötu 9.




...á fyrsta stefnumóti » Domo, Þingholtsstræti 5


...átt plássfreka og hávaðasama stórfjölskyldu » PerlanÖskjuhlíðin, með sinni ylströnd, kanínunýlendum og skógarþykkni er orðin að vin fyrir reykvískar fjölskyldur. Uppi á hæðinni gnæfir svo risavaxið tívolítæki í líki veitingahúss og þar við borð sitja börnin sem steinrunnin á meðan þau snúast í gegnum hvern réttinn á fætur öðrum. Og foreldrarnir njóta friðarstundar yfir dýrindis máltíð. » Culiacan, Faxafeni 9Staðir með fría áfyllingu hafa vinninginn þegar um stórar fjölskyldur er að ræða og þessi húlíóstaður í Faxafeni stendur American Style hvergi að baki hvað það varðar. Þar inni vinna suðrænir menn sem lífsleiðar mæðurnar geta horft á meðan fjölskyldan slafrar í sig matinn. Umgjörð þessa mexíkóska skyndibita er öll úr plasti, meira að segja glösin svo að enginn tekur kast á börnin og allir fara glaðir heim. » McDonalds, Suðurlandsbraut 56Hvað geturðu sagt þegar þér er skipað að taka U-beygju á 80 kílómetra hraða á Miklubraut og í baksýnisspeglinum mætirðu mænandi augum um leið og þau skríkja barnabox. Ætlarðu að benda þeim á aðframkominn Ameríkana sem næstum dó af því að éta borgarana? Hvað vegur það á móti barnaleikfangi, ostborgara og frönskum. Það þarf hvort sem er að kippa í vinsældatauminn öðru hverju.
...stórlax á viðskiptafundi » Silfur, Pósthússtræti 11Hafir þú spurnir af því að fundarmenn verði það smartir í tauinu að hætt er að við að þeir tóni ekki við innréttingarnar skaltu ekki taka neina áhættu og fara með liðið á Silfur. Þar er ekki svo auðvelt að toppa silfurlitað barokkveggfóðrið eða ljósakrónurnar úr Saltfélaginu. » Sjávarkjallarinn, Aðalstræti 2Matur í boxi er töff, hvernig sem á það er litið. Og sjávarréttir eru góð og prótínrík máltíð. Töff og prótín. Er það ekki það sem málið snýst um þegar þú ert stórlax? » Hótel Holt, Bergstaðastræti 37Séu fundarmenn viðskiptafundarins ekki úr nýríku deildinni þýðir ekkert að taka þá með á gamalt-út og allt-nýtt-inn uppastað. Gömlum peningi líður best í klassísku og eilítið þungu umhverfi þar sem dökk og massíf leðurhúsgögn og málverk meistaranna umlykja þig og færa þér innri ró. Einnig gott fyrir stórar og miklar ákvarðanir.
...í nostalgísku skapi » Hornið, Hafnarstræti 15Hornið er eins og að fara í gamlan og þægilegan inniskó. Pöntunin getur ekki týnst, auðvelt er að teygja sig í þjóninn eða jafnvel kokkinn og enginn þarna inni hefur þörf fyrir að koma þér á óvart. Maður er ekki alltaf í skapi fyrir óvæntar uppákomur eða þjóna sem henda í mann litlum smökkunartilraunum fyrir aðalréttinn. Pítsa með pepperóní, miðlungsrauðvín og ekkert fuss. Ekkert stórkostlegt, en traust og það er það sem maður vill þegar maður er í nostalgísku skapi. » Askur, Suðurlandsbraut 4Einhverjir muna eflaust eftir sér sitjandi í askarlaga umgjörð við Laugaveg þegar Askur var þar. Í dag er hann fluttur á Suðurlandsbraut og þótt hin dásamlegu borð séu því miður á bak og burt er hægt að taka hlaðborðið með trompi með kjarngóðri sunnudagsmáltíð þar sem allt er innifalið, frá sósum, grænum baunum, brúnuðum kartöflum og heila dæminu. Snilld fyrir svangar fjölskyldur. » Ítalía, Laugavegi 11Umhverfi Ítalíu er eins og klippt út úr stúdíóumhverfi lélegrar sápuóperu. Myntugrænir og ferskjulitaðir tónar níunda áratugarins með smá klípu af sítrónugulum eru allsráðandi og gerviblómin flækjast hvert fyrir öðru. Engu að síður er staðurinn alltaf, og kannski einmitt þess vegna frábær. Þjónustan sker sig úr og maður getur alltaf gengið að því vísu að sumt í þessum heimi breytist aldrei.
...með saumaklúbbnum » B5, Bankastræti 5Sá staður trónir í hásæti saumaklúbbsstaða. Staðurinn er hér um bil reyklaus og þar sitja þær gjammandi í hreinu lofti. Litli blómkálsfrauðskammturinn (2 munnbitar) er sérstaklega góður fyrir þær sem eru í aðhaldsdeildinni. Þegar staðurinn opnaði var mikið hlegið að stælunum með frönsku kartöflurnar, sem bornar eru fram í bréfpoka, en að öllu gríni slepptu þá er maturinn þar stórkostlegur. » 101 hótel, Hverfisgötu 10101 er eins og sett Spaugstofunnar. Þar má sjá erkitýpur þáttarins, Kára í deCODE, Jón Ásgeir, Ara Edwald og fleiri hræra í einum móhító. Augu vinkvennanna glennast upp og þær jafnvel ná að þegja í svo sem eina mínútu enda snarhitna hnakkablöðin við það að skrá atburðarásina inn á harða diskinn. » Nýja kökuhúsið, KringlunniSérútbúið umhverfi fyrir reykjandi saumaklúbba. Þar sitja gjaldkerar allra landsmanna og reykja á meðan þær bíða eftir crépes-pönnukökunum með hrísgrjónunum og sinnepssósunni. Minnir á stemninguna þegar gömlu Samvinnuferðar-Landsýnar dragtirnar sóluðu sig á Austurvelli þegar vel viðraði. Þær eru í mat, reykja sína sígó, drekka sinn kaffibolla og ekkert múður.