Bóklistaverk og aðrar bækur 29. mars 2007 10:00 Sigurður Pálsson ljóðskáld. Þýdd ljóð hans um garðinn eru í tvítyngdu bóklistaverki sem komið er út. MYND/heiða
Áfram halda veisluhöld vegna franska vorsins: nú eru menn minntir á framlag Frakka til bókmennta og fræðiritaútgáfu. Það er gert með sýningu í Þjóðarbókhlöðunni við Suðurgötu sem opnuð verður í dag. Af því tilefni kemur út bóklistaverk svokallað með ljóðum á báðum tungunum, íslensku og frönsku, eftir Sigurð Pálsson, myndlýst af Bernard Alligand. Það er hinn trausti samverkamaður Íslendinga í París, Regis Boyer, sem þýðir ljóð Sigurðar. Verkið kallast Garðurinn " Jardin " og er bókin gefin út í sjötíu eintökum sem öll eru árituð af listamönnunum. Bóklistaverk af þessu tagi eru ekki þekkt hér á landi þótt þau þekkist en þá einkum úr höndum myndlistarmanna. Í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu eru þau vel þekkt og nánast litið á þau sem sérstakt listform. Er sérvalinn til þeirra pappír, brot oft sérstakt, prentsverta sérvalin, flest eru þrykkt með gömlu blýsetningunni eða þrykkt með aðferðum grafíkur og þá með sérhönnuðum leturgerðum. Sigurður Pálsson sagði í viðtali við Fréttablaðið að vandamál hefðu komið upp í vinnslu verksins sem bentu til að við værum að glata gömlum verðmætum í prentlistinni. Þegar til kom að velja letur í Garðinn, sem prentaður er í frægri prentsmiðju í París sem sérhæfir sig í bókagerð sem þessari, var valin leturtegundin rómverskur Bodoni. Frakkana vantaði þá bæði þ og ð í letrið sitt og var leitað logandi ljósi að blýstöfum af þessari gerð. Þá kom í ljós að hin forna fimm hundruð ára prentaðferð sem Gutenberg fann upp er horfin á Íslandi og tækjabúnaður henni tengdur að mestu farinn forgörðum. Fyrir milligöngu Björns Sigurjónssonar hjá Prenttæknistofnun fundust þ og ð í Bretlandi. Raunar munu prentpressur ekki fleiri eftir í landinu en sem telja má á fingrum annarrar handar og væri vont ef svo færi að þær hyrfu alveg. Sigurður segir ljóðin í bóklistaverkið vera úr Garðasyrpu sem hann sagði úr bók sinni Ljóð námu menn. Bókverk af þessu tagi hafi menn lengi stundað hjá Matarasso-fjölskyldunni sem gefur verkið út. Hinn aldni útgefandi, Jacques Matarasso, er hér á landi ásamt konu sinni vegna þessa tilefnis, en hann kom að útgáfu súrrealistanna sem ungur maður í bókaverslun föður síns á St.Germain de Pres í París miðri og á langan feril sem útgefandi slíkra verka suður á strönd í Nice. Engin tvö eintök eru eins af bókum sem þessum og þær fara einkum til safnara. Samfara sýningunni á bók Sigurðar verður fjöldi merkilegra franskra fræðirita í kössunum í Þjóðarbókhlöðunni. Þeirra á meðal Alfræðiorðabók sú sem Diderot ritstýrði á sínum tíma fyrir Lebreton, prentara Lúðvíks XVI, sem gefið var út í Lousanne og Bern 1778-1781 og er frægur prentgripur og einstakur. Þá bók stóð til að Gallimard herforingi sem hingað kom með fríðu föruneyti á nítjándu öld færði íslensku þjóðinni að gjöf, segir Benedikt Gröndal, en varð ekki úr. Menn í embættismannastétt á Íslandi höfðu þá ekki áhuga á svona bókaflokki um allt milli himins og jarðar. Nú má sjá hana undir gleri í Þjóðarbókhlöðunni.
Mest lesið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Lífið Páskabingó Blökastsins Lífið „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Settu tærnar upp í loft og fengu knús Menning Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Lífið „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Lífið Fleiri fréttir Settu tærnar upp í loft og fengu knús „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira