Elín Ósk í stórræðum 2. apríl 2007 09:45 Ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona og stofnandi Óperukórs Hafnarfjarðar. MYND/Valli
Það styttist í frumsýningu á samstarfsverkefni Íslensku óperunnar og Óperukórs Hafnarfjarðar, hinni vinsælu óperu, Cavalleria Rusticana, í Gamla bíó en æfingar eru nú á fullu og verður frumsýningin að kvöldi annars páskadags. Um fjölmenna sýningu er að ræða því auk fimm einsöngvara taka yfir 60 manns úr Óperukór Hafnarfjarðar þátt í sýningunni ásamt yfir 40 manna hljómsveit Íslensku óperunnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Óperukór Hafnarfjarðar ræðst í sviðsetningu en stjórnandi og stofnandi kórsins, Elín Ósk Óskarsdóttir, syngur aðalkvenhlutverkið í verkinu, hlutverk Santuzzu. Önnur burðarhlutverk er líka í höndum þekktra söngvara: keppinauta um ástir Santuzza syngja þeir Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór, sem syngur hlutverk Turridos Ólafur Kjartan Sigurðarson, barítón, syngur hlutverk Alfios. Nýliðar í hópnum eru Hörn Hrafnsdóttir mezzósópran, sem fer með hlutverk Luciu, en hún hefur hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína í Systur Angelicu sem Óperustúdíó Íslensku óperunnar sýnir um þessar mundir, og Þórunn Stefánsdóttir sópran, syngur hlutverk Lolu. Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky og leikstjóri Ingólfur Níels Árnason sem hefur einnig umsjón með sviðsmynd og búningum. Cavalleria var sýnd í Þjóðleikhúsinu fyrir tveimur áratugum og naut þá mikilla vinsælda. Nú eru fyrirhugaðar fjórar sýningar á Cavalleria Rusticana. Hún er fyrsta óperan sem Mascagni samdi og jafnframt sú langvinsælasta. Verkið sló algjörlega í gegn þegar það var frumsýnt í Róm árið 1890 og hefur síðan þá verið sýnt reglulega um allan heim. Tónlistin úr verkinu hefur einnig verið mikið notuð í kvikmyndum og allir þekkja hið fræga Intermezzo í verkinu. Óperan er byggð á smásögu sikileyska rithöfundarins Giovanni Verga og segir frá Turiddo sem er ótrúr unnustu sinni því hann elskar enn fyrrverandi heitmey sína Lolu, sem nú er gift. Þegar Santuzza kemst að ótryggð Turiddos segir hún eiginmanni Lolu, Alfios, frá ástarsambandinu, til þess að hefna sín. Alfio skorar Turiddo á hólm og drepur hann. Það er Elín Ósk Óskarsdóttir sem er driffjöðrin í þessu mikla fyrirtæki. Hún stofnaði Óperukór Hafnarfjarðar árið 2000 og hefur stýrt honum síðan. Félagar eru 70 talsins en kórinn sérhæfir sig í flutningi á óperu- og Vínartónlist og hefur hróður hans borist víða. Elín Ósk Óskarsdóttir hélt upp á tuttugu ára starfsafmæli sitt á síðasta ári og af því tilefni gaf hún út geisladisk þar sem hún syngur nokkrar af helstu perlum óperubókmenntanna. Hún ræðst þó ekki á garðinn þar sem hann er lægstur með því tiltæki að hrinda af stað stórri óperuuppfærslu með kórnum sínum, vinum og stórri hljómsveit.
Mest lesið „Ég var mjög reiður út í heiminn í marga mánuði“ Lífið Einhleypan: Grænkeri sem hrífst af hugrekki Makamál Stjórnarandstaðan hræðist ekkert meðan ríkisstjórnin þori ekki út úr húsi Lífið Mamma mætti á frumsýningu Fjallsins Lífið Selur fantaflotta íbúð sem hann keypti af Birni Braga Lífið Berglind Festival, Hallgrímur Helga og Unnsteinn á sumarhryllingnum Lífið Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? Lífið samstarf „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Lífið samstarf Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Saknar ekki fullrar innkeyrslu af glæsikerrum Lífið Fleiri fréttir Ísland á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision Lét sig dreyma um Eurovision á Húsavík Björk mætir á stóra skjáinn Gítarleikari Whitesnake fallinn frá Upprunalegt handrit „Mr. Tambourine man“ seldist á 70 milljónir Heill hljóðheimur Hildar fer afturábak Frumsýning á Vísi: Ferðalag um næturhimininn með Kára Egils Troðfylltu Iðnó: „Þetta kom okkur alveg í opna skjöldu“ Bestu vinir sem fá að vinna við það sem þeir elska Bríet, Valdimar og Elín Hall meðal hæstu styrkhafa Segir Gunna hafa verið skipstjórann í brúnni Una Torfa og Jón Jónsson frumfluttu lag í beinni Frumsýning á Vísi: Hálka lífsins með Nýdönsk Nýdönsk á toppnum 2024 Sjá meira