Breska þjóðin í öngum sínum eftir sambandsslit Vilhjálms prins 17. apríl 2007 10:00 Búist hafði verið við því að Vilhjálmur og Kate myndu ganga í það heilaga á komandi árum. Nú eru þau plön farin út um þúfur.
Það er engum blöðum um það að fletta að stærsta fréttin í Bretlandi um helgina voru sambandsslit Kate Middleton og Vilhjálms prins. The Sun greindi fyrst allra frá því á laugardaginn. Breska pressan fór síðan hamförum í gær þar sem hvert og eitt einasta blað var með sína útgáfu af ástarsorginni. Þótt forsætisráðherra Breta, Tony Blair, hafi biðlað til bresku pressunnar að láta parið unga í friði létu blöðin gamminn geisa í gær. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær hélt News of the World því fram að hirðin hefði sett Vilhjálmi stólinn fyrir dyrnar og sagt að hún hefði ekki efni á „annarri Díönu“. The Sun greinir frá því að Kate og Vilhjálmur hafi ákveðið að slíta sambandinu í miklu táraflóði eftir skíðaferð í svissnesku Ölpunum. „Kate var aldrei sátt við að Vilhjálmur væri að bjóða stelpum í heimsókn til sín eftir næturbrölt. Og Vilhjálmur var ekki reiðubúinn til að fórna því frelsi sem hann fær í herþjónustunni,“ sagði náinn vinur parsins sem tók þó skýrt fram að Kate og Vilhjálmur yrðu áfram nánir vinir. Kate á að hafa verið ósátt með umgengni Vilhjálms við aðrar konur.Þessi saga The Sun kemur ekki heim og saman við það sem Mirror heldur fram. Þar er sagt frá því að Vilhjálmur hafi notast við farsíma og hætt með kærustunni sinni í gegnum síma eftir að þau gerðu sér grein fyrir því að sambandið stæði höllum fæti eftir stutt páskafrí. „Ég sá Kate taka símann út í bíl á miðvikudaginn og það var alveg greinilegt að þetta var Villhjálmur,“ sagði samstarfsmaður Kate. Hann segir jafnframt að stúlkan hafi ráfað um bílastæðahúsið, augljóslega í miklu áfalli eftir að henni varð ljóst að fjögurra ára samband hennar við væntanlegan kóng Bretlands var farið í vaskinn. Blaðið tekur undir sögusagnir The Sun um að Vilhjálmur hafi viljað meira svigrúm áður en hann tækist á við konunglegar skyldur sínar. Kate hafi hins vegar verið reiðubúin til að ganga inn kirkjugólfið. Middleton missir eitthvað af þeim fríðindum sem hún hefur haft meðan á sambandi hennar og Vilhjálms stóð. Meðal annars bílnum sem hún hefur haft til umráða.Og þótt ástæður The Sun og The Mirror fyrir sambandsslitunum séu nokkuð keimlíkar kemur The Daily Star með nýtt atriði í þennan mikla fjölmiðlasirkus sem skapaðist í kringum Vilhjálm og Kate. Þar er haft eftir nánum vinum að almúga-bakgrunnur Kate hafi skipt sköpum og það að móðir hennar hafi verið flugfreyja hafi farið ákaflega illa í hirðina. Vinir Vilhjálms hafi meðal annars gert óspart grín að flugfreyju-bakgrunninum og ekki síst hvernig Kate talaði. Daily Mail slær síðan botninn í umfjöllunina. Blaðið heldur því fram að Vilhjálmur hafi svarið sig í ættina því hann hafi átt í ástarsambandi við ekki bara eina stúlku heldur tvær á meðan Kate barðist fyrir að halda ástarævintýrinu gangandi. Vilhjálmi hafi tekist með herkjum að halda nöfnum þeirra leyndum en við aðra þeirra hefur sambandið staðið yfir í fjóra mánuði. Þar er jafnframt greint frá því að Vilhjálmur sé þekktur á börum Lundúna-borgar fyrir sitt flöktandi auga en Middleton hafi alltaf vitað af því. Það hafi jafnvel verið hluti af samningnum um að þau væru saman.
Kóngafólk Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira