Til heiðurs merkisberunum 19. apríl 2007 16:00 Agnar Már Magnússon leikur ásamt tríói sínu til heiðurs merkisberum djassins í Garðabæ. mynd/Sigurður Jökull Ólason
Djasshátíð Garðabæjar hefst í dag og stendur fram á laugardag. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en hún heppnaðist með afbrigðum vel í fyrra. Í ár einskorðast dagskrá hátíðarinnar ekki við innfædda Garðbæinga heldur leita skipuleggjendur hennar víða fanga og beina kastljósi sínu til dæmis að yngstu og elstu djasstónlistarmönnunum sem tengjast bænum. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Sigurður Flosason tónlistarmaður og fyrrum bæjarlistamaður Garðabæjar. Í dag verður boðið upp á tónleika í Urðarbrunni, hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ þar sem Stórsveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Össurar Geirssonar og Borgardætur syngja bæði sem einsöngvarar og tríó. Á morgun verða yngstu djasslistamenn Garðabæjar í fremstu röð á tónleikum í Tónlistarskóla Garðabæjar en þar kemur fram hljómsveitin Tepokinn og söngkonan María Magnúsdóttir. Á sama stað á laugardag verða síðan tvennir tónleikar, Jóel Pálson og kvintett hans leikur kl. 14 en síðan verða haldnir tónleikar til heiðurs merkisberum djasstónlistar í bænum, píanóleikurunum Árna Elfari og Ólafi Stephensen. Þar leiðir einn af fremstu djasspíanóleikurum þjóðarinnar og nýbakaður Garðbæingur, Agnar Már Magnússon tríó sitt og leikur lög sem tengjast fyrrgreindum köppum. Með honum leika trymbillinn Erik Qvik og kontrabassaleikarinn Þorgrímur Jónsson. Ókeypis er á viðburði hátíðarinnar og er tónlistarunnendum bent á að sækja sér miða fyrirfram í útibú Glitnis við Garðatorg en einnig verður hægt að fá miða á tónleikastað. Það er menningar- og safnanefnd Garðabæjar sem stendur að hátíðinni og aðalstyrktaraðili hátíðarinnar í ár er Menningarsjóður Glitnis.
Mest lesið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira