Mótetta og Morthens 17. maí 2007 09:30 Bætir við sig Rósa Jóhannsdóttir sópransöngkona er einnig liðtækur fiðluleikari.
Nú er tími tónleikanna og þá einkum þeirra sem kenndir eru við burtfararpróf. Í dag heldur Rósa Jóhannesdóttir einsöngstónleika í Áskirkju ásamt Kristni Erni Kristinssyni píanóleikara. Rósa lýkur um þessar mundir burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík. Rósa er sópransöngkona en hún er einnig menntaður fiðluleikari. Hún hóf nám við Tónskóla Sigurveins og hélt síðan í framhaldsnám til Þýskalands og hefur einnig starfað sem fiðlukennari. Hún segist vonast til þess að geta sameinað sönginn og fiðluna og sinnt þeim jöfnum höndum. Efnisskrá tónleikanna er afar fjölbreytt, auk mótettu Mozarts „Exultate jubilate“ flytur Rósa ljóðasöngva eftir Jórunni Viðar, Jón Þórarinsson, Grieg, Brahms og Schumann auk aría eftir Puccini og Donizetti. Einnig flytur Rósa dægurlag sem Haukur Morthens gerði víðfrægt á árum áður. Með Rósu og Kristni leika einnig hljómlistarmennirnir Ari Agnarsson, Eyjólfur B. Alfreðsson, Hjörleifur Valsson, Kári Þormar og Victoria Tarevskaia. Tónleikarnir hefjast kl. 17 í dag og er aðgangur að þeim ókeypis.
Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Fleiri fréttir Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira