Drullugir upp fyrir haus 1. júlí 2007 01:15 Hljómsveitin Trabant á Rockness-hátíðinni í Skotlandi.
Hljómsveitin Trabant er nýkomin heim úr mánaðarlangri tónleikaferð um Bretlandseyjar þar sem hún spilaði á rúmlega tuttugu tónleikum. Doddi trommari játar að vera orðinn ansi lúinn eftir törnina. „Það er ekki mikill tími til að slappa af. Menn eru komnir á fullt í alls konar dóterí annað. Manni hefði ekki veitt af því að fara í mánaðar sumarfrí úti á landi en það er ekki alveg í boði," segir Doddi. Drullumall á Glastonburymeð fatboy slim Trabant í stuði með Fatboy Slim, sem heitir réttu nafni Norman Cook. eftir tónleika á litlum stað í Brighton.Lokatónleikarnir í reisunni voru á Glastonbury-hátíðinni, þar sem Björk og Gus Gus komu einnig fram. „Það gekk ágætlega. Þetta er svo fáránlegur staður og ekkert sem maður hefði getað ímyndað sér. Þetta var algjört drullumall og algjört kaos en ógeðslega gaman eftir á. Við komum heim drullugir upp fyrir haus. Allar töskurnar voru drullugar og þarna er engin aðstaða nema þú sért toppband. Allir aðrir voru þarna í skítnum saman. Þetta var mjög fallegt, þannig séð, og fyndin stemning á þessari hátíð," segir hann. Á undan Daft Punkí london Trabant í almenningsgarði í London en þar í borg hélt sveitin vel heppnaða tónleika.Dodda eru minnistæðir tónleikar á Rockness-hátíðinni í Skotlandi við hliðna á Loch Ness-vatninu. „Daft Punk voru á eftir okkur og við spiluðum inni í þessu frábæra setti þeirra. Þeir eru með brjálæðislegt „show" og þarna var tölvert meira af fólki að horfa á okkur. Við spiluðum í furðulegustu skúmaskotum á þessum túr og lentum í alls konar aðstæðum. Stundum kom enginn að horfa á okkur og stundum kom slatti af fólki. Það var rosalega gaman í London enda höfum við verið að spila mest þar. Þar var frábær stemning en annars var þetta gott fyrir auðmýktina." Emotional í Bretlandifatahreinsun frægra Ragnar Kjartansson, söngvari, hreinsaði jakkafötin sín að sjálfsögðu í Fatahreinsun fræga fólksins í London.Síðasta plata Trabant, Emotional, kom út í Bretlandi um miðjan júní á vegum Southern Fried Records og hefur fengið góðar viðtökur. Framundan hjá sveitinni er að halda áfram að semja efni á nýja plötu, auk þess sem hún spilar á listahátíðinni LungA á Seyðisfirði laugardaginn 21. júlí. Þar koma einnig fram Bloodgroup, Skátar, Jeff Who? og Mínus.
Mest lesið Pamela slær á sögusagnirnar Lífið Allt ætlaði um koll að keyra í Borgarleikhúsinu Lífið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið Fréttatía vikunnar: Friðlýsing, frumsýning og handtaka Lífið Nýupptekið grænmeti á Flúðum í dag og opnar garðyrkjustöðvar Lífið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Hleypur 110 kílómetra á dag til að setja heimsmet Lífið Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Fleiri fréttir Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Sjá meira
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“